Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

22. desember 2021

Útgáfudagur

29. desember 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1626/2021

22. desember 2021

REGLUR

um aðgerðir gegn markaðssvikum.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 frá 16. apríl 2014 um markaðssvik (reglugerð um markaðssvik) hvað varðar:

  1. Nákvæmt snið innherjalista og uppfærslu á innherjalistum skv. 18. gr. reglugerðar um markaðssvik.
  2. Form og sniðmát fyrir tilkynningu og opinbera birtingu að því er varðar viðskipti stjórnenda skv. 19. gr. reglugerðar um markaðssvik.
  3. Fullnægjandi fyrirkomulag, kerfi og verklag og sniðmát fyrir tilkynningar sem notað er til að koma í veg fyrir, greina og tilkynna um markaðsmisnotkun eða grunsamleg fyrirmæli eða viðskipti skv. 16. gr. reglugerðar um markaðssvik.
  4. Kerfi og sniðmát fyrir tilkynningar sem markaðsaðilar sem miðla upplýsingum skulu nota og snið skránna sem nota skal fyrir tilkynningar skv. 11. gr. reglugerðar um markaðssvik.

2. gr. Tilvísanir.

Samstæða:Tilvísanir í reglum þessum til samstæðu eins og hún er skilgreind í 11. mgr. 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB skal skilja sem tilvísanir til samstæðu skv. 33. tölulið 2. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55. frá 26. ágúst 2021, bls. 232-262, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 306/2019 frá 13. desember 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020 bls. 61-65, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/347 frá 10. mars 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar nákvæmt snið innherjalista og uppfærslu á innherjalistum í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/523 frá 10. mars 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar form og sniðmát fyrir tilkynningu og opinbera birtingu að því er varðar viðskipti stjórnenda í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/957 frá 9. mars 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um fullnægjandi fyrirkomulag, kerfi og verklag og sniðmát fyrir tilkynningar sem notað er til að koma í veg fyrir, greina og tilkynna um markaðsmisnotkun eða grunsamleg fyrirmæli eða viðskipti.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/959 frá 17. maí 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir markaðsþreifingar að því er varðar kerfi og sniðmát fyrir tilkynningar sem markaðsaðilar sem miðla upplýsingum skulu nota og snið skránna í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3., 7., 8., 11. og 16. tölulið 2. mgr. 19. gr. laga nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, taka gildi þegar í stað.

Seðlabanka Íslands, 22. desember 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 29. desember 2021

Tengd mál