Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umferðarmál
Undirritunardagur
29. maí 2026
Útgáfudagur
29. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 604/2026
29. maí 2026
REGLUGERÐ
um rekstrarsamhæfi rafrænna gjaldtökukerfa og um að greiða fyrir upplýsingaskiptum yfir landamæri í tengslum við vanefndir á greiðslu veggjalda innan Evrópska efnahagssvæðisins.
1. gr. Markmið og gildissvið.
Í reglugerð þessari er kveðið á um nauðsynleg skilyrði til þess að:
- til að tryggja rekstrarsamhæfi rafrænna gjaldtökukerfa í öllu vegakerfi Sambandsins, á hraðbrautum í borgum og milli borga, aðalvegum og smærri vegum og við ýmis mannvirki, s.s. göng, brýr og ferjur, og
- til að greiða fyrir upplýsingaskiptum úr ökutækjaskrá yfir landamæri að því er varðar ökutæki og eigendur eða umráðamenn ökutækja sem tengjast vanefndum á greiðslu hvers kyns veggjalda í Sambandinu.
2. gr. Rafræn evrópsk veggjaldaþjónusta.
Ákvæði í greinum 3-22 í tilskipun (ESB) 2019/520 koma ekki til framkvæmda á Íslandi, sbr. b-liður 2. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar.
3. gr. Ferli fyrir upplýsingaskipti á milli aðildarríkja.
Samgöngustofa er landsbundinn tengiliður í samræmi við 23. gr. tilskipunar (ESB) 2019/520 og veitir upplýsingar um skráð ökutæki í ökutækjaskrá stofnunarinnar komi fram beiðni um það frá til þess bærum aðila.
Samgöngustofa kallar eftir upplýsingum í gegnum EUCARIS-kerfið um skráða eigendur/umráðendur erlendra ökutækja komi fram beiðni um það frá til þess bærum aðila. Samgöngustofa tekur gjald fyrir slíka uppflettingu í samræmi við gjaldskrá stofnunarinnar.
4. gr. Málsmeðferð vegna vanefnda við greiðslu veggjalda.
Innheimtuaðili veggjalda fer með málsmeðferð og eftirfylgni vegna vanefnda á greiðslu veggjalda í samræmi við 24. og 25. gr. tilskipunar (ESB) 2019/520.
5. gr. Skýrslugjöf til Eftirlitsstofnunar EFTA.
Samgöngustofa skal útbúa skýrslu og senda til Eftirlitsstofnunar EFTA í samræmi við 26. gr. tilskipunar (ESB) 2019/520. Innheimtuaðili veggjalda skal veita Samgöngustofu nauðsynlegar upplýsingar fyrir skýrslugerðina á því formi að taka megi þær beint upp í skýrsluna.
6. gr. Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir og tilskipun, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/520 frá 19. mars 2019 um rekstrarsamhæfi rafrænna vegatollkerfa og um að greiða fyrir upplýsingaskiptum yfir landamæri í tengslum við vanefndir á greiðslu veggjalda í Sambandinu (endurútgefin), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2025, 7. febrúar 2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 626-657.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/204 frá 28. nóvember 2019 um ítarlegar skuldbindingar veitenda evrópskrar, rafrænnar vegatollþjónustu, lágmarkskröfur um inntak svæðisyfirlýsingar fyrir evrópska, rafræna vegatollþjónustu, rafrænan skilflöt, kröfur um rekstrarsamhæfishluta og um niðurfellingu á ákvörðun 2009/750/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2025, 7. febrúar 2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 666-679.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/203 frá 28. nóvember 2019 um flokkun ökutækja, skuldbindingar notenda evrópskrar, rafrænnar vegatollþjónustu, kröfur um rekstrarsamhæfishluta og um lágmarksviðmiðanir um hæfi tilkynntra aðila, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 31/2025, 7. febrúar 2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 658-665.
7. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi sem er sett með heimild í 17. gr. vegalaga nr. 80/2007 öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð um rekstrarsamhæfi rafræns gjaldtökukerfis innan Evrópska efnahagssvæðisins, nr. 979/2013.
Innviðaráðuneytinu, 29. maí 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026