Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dalvíkurbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Dalvíkurbyggð
Undirritunardagur
16. júlí 2026
Útgáfudagur
17. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 819/2026
16. júlí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Dalvíkurbyggð.
Deiliskipulag iðnaðarsvæðis í landi Ytri-Haga.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti 5. júní 2026 tillögu að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði í landi Ytri-Haga skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan nær yfir svæði sem liggur í norður frá bænum Syðri-Haga í átt að Sólbakka. Á svæðinu verður gert ráð fyrir þremur lóðum fyrir borholuplan, borholuhús, dælustöð og loftskilju, ásamt því að tillagan gerir ráð fyrir aðkomu að skipulagssvæðinu um nýjan þjónustuveg og hitaveitulögn frá borholum að sveitarfélagamörkum við Hörgársveit.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 40.-42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Dalvík, 16. júlí 2026.
F.h. Dalvíkurbyggðar,
María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 17. júlí 2026