Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

12. júní 2025

Útgáfudagur

27. júní 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 717/2025

12. júní 2025

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 888/2016 um viðurkenningu Háskóla Íslands á akademísku hæfi starfsmanna á Landspítala og veitingu akademískrar nafnbótar.

1. gr.

Heiti reglnanna skal vera: Reglur um viðurkenningu Háskóla Íslands á akademísku hæfi starfsfólks á Landspítala og veitingu akademískrar nafnbótar.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 2. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðanna „Starfsmaður LSH sem ráðinn“ koma orðin: Starfsfólk Landspítala sem ráðið.
  2. Í stað orðanna „lektorsstarfi, dósentastarfi eða prófessorastarfi“ koma orðin: akademísku starfi.

3. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við 1. og 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og samstarfssamning milli Háskóla Íslands og Landspítala. Reglurnar öðlast gildi 1. júlí 2025.

Háskóla Íslands, 12. júní 2025.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025

Tengd mál