Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli
Undirritunardagur
23. mars 2026
Útgáfudagur
10. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 344/2026
23. mars 2026
REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 204/2023 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2325 um að fastsetja, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848, skrána yfir þriðju lönd og skrána yfir eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðila sem hafa verið viðurkennd að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 9. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/883 frá 14. maí 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2325 er varðar viðurkenningu á tilteknum þriðju löndum og eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 265/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 261.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög um matvæli, nr. 93/1995.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. mars 2026.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Donika Kolica.
B deild — Útgáfudagur: 10. apríl 2026