Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Norðurþing
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Norðurþing
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
6. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1605/2025
15. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir hreinsun, tæmingu og eftirlit með rotþróm í Norðurþingi.
1. gr.
Sveitarstjórn Norðurþings er heimilt að innheimta árlega gjöld vegna hreinsunar rotþróa á vegum sveitarfélagsins samkvæmt gjaldskrá sem sett er samkvæmt 5. mgr. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar.
Fyrir hverja fasteign innan marka Norðurþings með eigin fráveitu, eða fráveitu sem ekki er tengd holræsakerfi í eigu Norðurþings, skal greiða árlegt þjónustugjald, sbr. 4. gr. samþykktar um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra. Greiða skal sérstakt gjald fyrir hverja rotþró ef fleiri en ein rotþró er á sömu fasteign. Undanþegnir frá gjaldskyldu eru aðilar sem framvísa samningi um tæmingu rotþróa við þjónustuaðila með gilt starfsleyfi heilbrigðiseftirlits, sbr. 3. gr. samþykktar um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra. Ef fleiri en ein húseign er tengd rotþró skal þjónustugjaldi deilt með jöfnum hætti á fasteignir, nema ef sýnt er fram á aðra eignar- eða notkunarskiptingu á þrónni.
2. gr.
Orkuveita Húsavíkur ohf. annast hreinsun rotþróa í eigu fasteignaeigenda á starfssvæði veitunnar þriðja hvert ár. Gjaldið er miðað við raunkostnað við hreinsun, urðun seyru og umsjón með verkinu.
Árlegt rotþróargjald er óháð stærð rotþróa og miðast við losun þriðja hvert ár:
0-6.000 lítrar, 22.400 kr.
Fyrir rotþrær stærri en 6 m³:
5.750 kr. á ári fyrir hvern rúmmetra umfram 6,0 m³.
Endurkomugjald (þ.e. ef þró er ekki tilbúin) er 50% álag miðað við stærð þróar. Fjárhæð árgjalds miðast við að tæming og skoðun rotþróar eigi sér stað þriðja hvert ár. Komi fram beiðni um eða ef nauðsynlegt er að tæma rotþró sérstaklega, skal greiða samkvæmt reikningi verktaka.
Fjárhæð árgjalds miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að nota lengri barka en 50 m. Ef leggja þarf lengri barka en 50 m þá bætast við 8.727 kr.
Gjalddagi og innheimta þjónustugjalds skv. 2. gr. fer fram með sama hætti og á sama tíma og álagning fasteignaskatts. Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari er heimilt að innheimta með fjárnámi í fasteign sem rotþró tengist án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
3. gr.
Gjaldskrá þessi er samin á grundvelli samþykktar um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra að undanskildum Húsavíkurbæ, nr. 671/2003. Gjaldskráin er samin og samþykkt af sveitarstjórn Norðurþings og staðfest á fundi hennar 11. desember 2025 og öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1509/2020.
Húsavík, 15. desember 2025.
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 6. janúar 2026