Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Alþingi, Kosningar

Undirritunardagur

17. október 2024

Útgáfudagur

17. október 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 120/2024

17. október 2024

FORSETABRÉF

um þingrof og almennar kosningar til Alþingis.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Forsætisráðherra hefur tjáð mér að það sé mat hans eftir samtöl við formenn Framsóknarflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að flýta eigi almennum kosningum til Alþingis.

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með vísan til 24. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, eins og henni var breytt með 5. gr. stjórnarskipunarlaga nr. 56/1991, sbr. 4. mgr. 23. gr. kosningalaga, nr. 112/2021, er með skírskotun til framanritaðs ákveðið að þing verði rofið 30. nóvember 2024 og að almennar kosningar til Alþingis fari fram sama dag.

Gjört á Bessastöðum, 17. október 2024.

Halla Tómasdóttir.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.

A deild - Útgáfud.: 17. október 2024

Tengd mál