Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál, Múlaþing

Undirritunardagur

10. desember 2025

Útgáfudagur

15. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1361/2025

10. desember 2025

GJALDSKRÁ

HEF veitna ehf. – hitaveita.

1. gr.

HEF veitur ehf. (HEF) selur afnot af heitu vatni úr veitukerfum sem gerð hafa verið og verða gerð á veitusvæði hitaveitunnar eftir þeim reglum sem settar eru í gjaldskrá þessari, sbr. reglugerð nr. 564/2008.

2. gr.

HEF lætur hverju húsi sem tengt er veitukerfi hennar í té vatnsmagn til neysluvatnsnota og upphitunar enda fullnægi hitakerfi hússins skilyrðum, sem sett eru í reglugerð fyrir HEF og hitafletir séu nægjanlega stórir að mati HEF.

Einnig selur HEF afnot af heitu vatni til annarra nota en hitunar og neysluvatnsnota eftir því sem vatnsmagn leyfir og hún telur henta.

3. gr.

HEF lætur notanda í þéttbýli á Egilsstöðum og í Fellabæ í té vatnsmagn samkvæmt 1. og 2. gr. um rennslismæli sem HEF leggur til og annast viðhald á. Mælir þessi skal innsiglaður og er húseiganda/notanda með öllu óheimilt að rjúfa innsigli mælisins.

HEF lætur notanda í dreifbýli (utan þéttbýlis á Egilsstöðum og Fellabæ) í té vatnsmagn samkvæmt 4. gr. um hemil sem HEF leggur til og annast viðhald á. Hemill þessi skal innsiglaður og er húseiganda/notanda með öllu óheimilt að rjúfa innsigli hemilsins. Heimilt er að innheimta 40% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð 8 mánuðum eftir að hitaveitutenging er tilbúin til notkunar.

4. gr.

Greiða skal í ríkissjóð umhverfis- og auðlindaskatt, 2% af smásöluverði á heitu vatni. Virðisaukaskattur er 11% af vatni til húshitunar. Sérmæld snjóbræðsla ber 24% virðisaukaskatt.

Hitaveitugjöld fyrir þéttbýli á Egilsstöðum og Fellabæ.

Gjald fyrir afnot af heita vatninu er sem hér segir:

Heitt vatn um rennslismæli:

  Kr. án vsk

Með 2%
u&a skatti

Með 11% vsk Með 24% vsk Eining
Fyrir hvern rúmmetra vatns 158,00 161,16 178,89 199,84 kr./m³
Hver rúmmetri vatns í lausasölu 319,00 325,38   403,47 kr./m³
Afgreiðslugjald frá kyndistöð 2.160,00     2.700,00 stk.

Fast gjald er háð afköstum rennslismælisins, en óháð töxtum að öðru leyti. Því er skipt í fjóra flokka:

Stærð mælis Kr. án vsk

Með 2%
u&a skatti

Með 11% vsk Eining
15 mm 23.826 24.303 26.976 kr./ári
20 mm - 25 mm 56.298 57.424 63.741 kr./ári
32 mm - 50 mm 111.964 114.203 126.765 kr./ári
65 mm og stærri 155.884 159.002 176.492 kr./ári

Hitaveitugjöld fyrir dreifbýli (utan þéttbýlis á Egilsstöðum og í Fellabæ).

Heitt vatn um rennslishemil:

  Kr. án vsk

Með 2%
u&a skatti

Með 11% vsk Eining
Fyrir hvern m³/hemil *1) 162,00 165,24 183,42 kr./m³
Aukamælir/sami notandi 162,00 165,24 183,42 kr./m³
Mínútulítri, lágmark 3 l 3.479,00 3.548,58 3.938,92 kr./l/mán.
Mínútulítri, umfram 3 l *2) 2.779,00 2.834,58 3.146,38 kr./l/mán.

*1) Rúmmetramæling á neysluvatni, á lögbýlum og þar sem er heilsársbúseta.
*2) Á við þar sem eingöngu er hemill.

Fast gjald er háð afköstum rennslismælisins, en óháð töxtum að öðru leyti.

Stærð mælis Kr.

Með 2%
u&a skatti

Með 11% vsk Eining
15 mm - 20 mm 31.555 32.186 35.727 kr./ári
25 mm 42.033 42.874 47.590 kr./ári

5. gr.

Þegar afnot af hitaveitunni eru leyfð til annarra nota en húshitunar, er veitunni heimilt að ákveða gjald fyrir slík afnot sérstaklega í hverju tilviki með hliðsjón af gjaldskrá þessari.

6. gr.

Hitaveitugjöld skv. 4. gr. verða krafin mánaðarlega. Lesið verður af mælum að jafnaði einu sinni á ári, en notkun þess á milli áætluð. Heimilt er að fækka eða fjölga álestrum. Óski notandi þess að lesið sé á mæli hans utan reglubundins álestrartíma HEF greiðist álestrargjald 2.500 kr.

7. gr.

Gjalddagi hitaveitugjalda er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Sé reikningur ekki greiddur við fyrstu sýningu ber gjaldanda að greiða hann þar sem HEF ákveður. Það eru vanskil ef gjöldin eru ekki að fullu greidd á eindaga.

8. gr.

Heimæðargjöld HEF til húshitunar skulu miðast við brúttórúmmál húss samkvæmt byggingarreglugerð og vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

Heimæðargjöld í þéttbýli á Egilsstöðum og í Fellabæ.

Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðargjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðargjöld til annarra nota:

Sverleiki pípu Viðmiðunarstærð húsnæðis Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
20 mm allt að 1.200 m³ 425.600 472.416 527.744
25 mm 1.201 - 2.600 m³ 592.800 658.008 735.072
32 mm 2.601 - 4.000 m³ 891.200 989.232 1.105.088
40 mm 4.001 - 10.400 m³ 1.350.600 1.499.166 1.674.744
50 mm 10.401 - 21.000 m³ 2.097.000 2.327.670 2.600.280
65 mm > 21.000 m³ 2.771.900 3.076.809 3.437.156

Ef um sverari heimæðar er að ræða skal semja um það sérstaklega.

Heimæðargjöld í dreifbýli (utan þéttbýlis á Egilsstöðum og í Fellabæ).

Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðargjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðargjöld til annarra nota.

Sverleiki pípu Viðmiðunarstærð húsnæðis Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
20 - 25 mm allt að 1.200 m³ 1.603.600 1.779.996 1.988.464

Ef um sverari heimæðar er að ræða skal semja um það sérstaklega.

Lengdargjald.

Lengdargjald í þéttbýli, greitt skal fyrir hvern metra umfram 25 m innan lóðarmarka 8.300 kr./m.

Lengdargjald í dreifbýli, greitt er fyrir frá stofnlögn að tengistað heimæðar að frádregnum 50 m 8.300 kr./m.

Nú eru fleiri en eitt hitakerfi í húsi með sérstökum mælum frá HEF og skal þá greiða 45.900 kr. í aukagjald fyrir hvern mæli umfram þann fyrsta.

Sé sameiginleg heimæð lögð í parhús þó þannig að lögnin sé klofin og sérstök tengigrind komi í hvora íbúð skal afsláttur af inntaksgjaldi hvorrar íbúðar nema 10%.

Ef um er að ræða atvinnuhúsnæði sem hitað er upp að hluta er heimilt að fella niður heimæðargjald af þeim hluta hússins sem ekki er hitaður. Verði breyting á starfsemi í slíku húsi þannig að farið verði að hita það allt upp þá er allt heimæðargjaldið gjaldfallið samkvæmt gjaldskrá þess tíma sem breytingin á sér stað.

9. gr.

Heimæðargjald skal greitt samkvæmt gjaldskrá. Eigandi fær upplýsingar um heimæðargjald eftir að umsókn um heimæð hefur borist. Heimæðargjald skal greitt áður en vinna við lagningu hefst.

10. gr.

Hitaveitugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar. HEF er heimilt að breyta gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari í samræmi við breytingar á áðurnefndri vísitölu, enda sé breytingin staðfest af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu hverju sinni.

11. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda.

12. gr.

HEF hefur rétt til að loka fyrir aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Séu fleiri en einn notandi í húsi með sameiginlega heimæð og hitakerfi skerðir það ekki rétt HEF til að loka fyrir aðrennsli heita vatnsins ef einn þessara aðila vanrækir greiðslur þó reikningum sé skipt á notendur.

Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með a.m.k. 3ja daga fyrirvara, innheimtugjald vegna vanskila notanda 4.000 kr. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilum veldur 7.000 kr. í hvert sinn.

13. gr.

Einungis starfsmönnum HEF er heimilt að breyta innsigluðum tengihlutum veitunnar. Eftirlitsmanni HEF skal hvenær sem er heimill aðgangur að öllum mælum, hitagjöfum og vatnsæðum sem eru í sambandi við hitaveituna.

Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.

14. gr.

Virðisaukaskattur leggst á gjöldin samkvæmt gildandi lögum og reglum hverju sinni.

Gjaldskrá þessi, sem er samin og samþykkt af stjórn HEF og sett samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, staðfestist hér með til að taka gildi 1. janúar 2026. Jafnframt er úr gildi felld gjaldskrá sama efnis, nr. 1688/2024.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 10. desember 2025.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild — Útgáfudagur: 15. desember 2025

Tengd mál