Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
3. júní 2024
Útgáfudagur
18. júní 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 709/2024
3. júní 2024
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 331/2022 um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 27. gr. reglnanna:
-
2.
mgr.
hljóðar
svo
í
heild
sinni:
Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám í eðlisfræði, efnafræði og verkfræðilegri eðlisfræði: 30 einingar í stærðfræði og 40 einingar í náttúrufræðigreinum. Þar af skulu vera minnst 10 einingar í eðlisfræði, 10 einingar í efnafræði og 10 einingar í líffræði. -
Á
eftir
2.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám í hagnýtri stærðfræði, stærðfræði, stærðfræði og stærðfræðimenntun: 30 einingar í stærðfræði og 30 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði. - Núverandi 3. mgr. verður 4. mgr., núverandi 5. mgr. verður 6. mgr. o.s.frv.
2. gr.
Reglur þessar sem rektor hefur samþykkt fyrir hönd háskólaráðs, á grundvelli tillögu viðkomandi fræðasviðs, sbr. 3. mgr. 18. gr. og 2. mgr. 8. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 3. júní 2024.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 18. júní 2024