Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
11. maí 2026
Útgáfudagur
27. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 554/2026
11. maí 2026
REGLUR
um sameiginlegar ákvarðanir eftirlitsstjórnvalda um beitingu tiltekinna aðferða við útreikning á eiginfjárkröfum fjármálafyrirtækja.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um sameiginlegar ákvarðanir eftirlitsstjórnvalda um að veita fjármálafyrirtæki leyfi til þess að beita tilteknum aðferðum við útreikning á eiginfjárkröfum samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 575/2013, um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki, sbr. lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
2. gr. Sameiginlegt ákvörðunarferli.
Um sameiginlegt ákvörðunarferli eftirlitsstjórnvalda vegna umsóknar fjármálafyrirtækis um leyfi til að beita tiltekinni aðferð við útreikning á eiginfjárkröfum skv. 20. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 fer eftir reglugerð (ESB) 2016/100, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.
3. gr. Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/100 frá 16. október 2015 þar sem sameiginlega ákvörðunarferlið er tilgreint með tilliti til umsóknar um sérstök varfærnisleyfi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 36-44.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2338 frá 20. nóvember 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/100 um tæknilega framkvæmdarstaðla þar sem sameiginlega ákvörðunarferlið er tilgreint með tilliti til umsóknar um sérstök varfærnisleyfi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 141/2026 frá 30. apríl 2026.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2338 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32025R2338, birt í OJ deild L, undirdeild R, 2025/2338, þann 21. nóvember 2025.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, taka gildi þegar í stað. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur um sameiginlegar ákvarðanir eftirlitsstjórnvalda varðandi tilteknar aðferðir við útreikning á eiginfjárkröfum fjármálafyrirtækja, nr. 793/2022.
Seðlabanka Íslands, 11. maí 2026.
Björk Sigurgísladóttir
varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 27. maí 2026