Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. júní 2025
Útgáfudagur
27. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 698/2025
12. júní 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 214/2011 um meistara- og doktorsnám við Háskóla Íslands í umhverfis- og auðlindafræðum.
1. gr.
Í stað orðanna „15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla“ í 4. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglnanna koma orðin: 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
2. gr.
Í stað orðsins „menn“ í 1. málsl. 3. mgr. 4. gr. reglnanna kemur orðið: fólk.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglnanna:
- Í stað „BS-prófi“ í 1. og 2. málsl. 1. gr. kemur: BS-gráðu.
- Í stað orðsins „próf“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur orðið: prófgráður.
- Í stað orðanna „viðbótarnám á meistarastigi“ í 3. mgr. kemur orðið: örnám.
- Í stað „BA-prófi“ í 3. mgr. kemur: BA-gráðu.
4. gr.
Í stað orðsins „meistaraprófs“ í 3. málsl. 1. mgr. 8. gr. reglnanna kemur orðið: meistaragráðu.
5. gr.
Í stað orðsins „meistaranámsnefnd“ í 2. málsl. 2. mgr. 15. gr. reglnanna kemur orðið: meistaranefnd.
6. gr.
Í stað orðsins „Meistaraprófsritgerð“ í 1. málsl. 1. mgr. 16. gr. reglnanna kemur orðið: Meistararitgerð.
7. gr.
Í stað orðsins „Meistarapróf“ í 18. gr. reglnanna kemur orðið: Meistaragráða.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. reglnanna:
- Í stað „MA-prófi“ í 1. málsl. kemur: MA-gráðu.
- Í stað orðsins „prófi“ 1. málsl. kemur orðið: gráðu.
- Í stað orðsins „meistarapróf“ í 2. málsl. kemur orðið: meistaragráða.
- Í stað orðanna „loknu meistaraprófi“ í 5. málsl. koma orðin: lokinni meistaragráðu.
- Í stað orðsins „prófi“ í 5. málsl. kemur orðið: gráðunni.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 24. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „manni“ í 4. málsl. kemur orðið: nemanda.
- Í stað orðsins „doktorspróf“ í 4. málsl. kemur orðið: doktorsvörn.
10. gr.
Í stað orðsins „Doktorspróf“ í 24. gr. a. kemur orðið: Doktorsgráða.
11. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við reglur nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. júní 2025.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025