Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Vesturbyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Vesturbyggð

Undirritunardagur

30. september 2026

Útgáfudagur

14. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1093/2026

30. september 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Vesturbyggð.

Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Patreksfirði.

Heimastjórn Patreksfjarðar samþykkti á fundi sínum 8. apríl 2026 breytingu á deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið á Patreksfirði. Deiliskipulagsbreytingin er unnin vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýs stórskipakants við Patrekshöfn, auk annarra breytinga og lagfæringa innan skipulagssvæðisins. Breytingin felur meðal annars í sér skilgreiningu nýs hafnarkants, stækkun hafnarsvæðis, breytingar á vegtengingum, leiðréttingar á lóðamörkum og uppfærslu skilmála og skipulagsgagna til samræmis við núverandi aðstæður og fyrirhugaða uppbyggingu. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 24. nóvember 2025.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Patreksfirði, 30. september 2026.

Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 14. október 2026

Tengd mál