Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Árborg
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Sveitarfélagið Árborg
Undirritunardagur
3. desember 2025
Útgáfudagur
22. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1694/2025
3. desember 2025
GJALDSKRÁ
fráveitugjalda í Sveitarfélaginu Árborg.
1. gr. Gjaldskylda.
Sveitarfélagið Árborg innheimtir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og gjald fyrir hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu samkvæmt gjaldskrá þessari og II. kafla samþykktar um fráveitur í Sveitarfélaginu Árborg nr. 1403/2023.
2. gr. Stofngjald fráveitu.
Stofngjald vegna tengingar og lagningar frárennslislagna frá lóðarmörkum húseiganda við fráveitukerfi sveitarfélagsins sem og hlutdeild í stofnkostnaði aðliggjandi fráveitukerfis skal vera sem hér segir:
| Einbýlis-, par- og raðhús, á hverja íbúð | 713.194 kr. | |
| Fjölbýlishús, á hverja íbúð | 355.962 kr. | |
| Mannvirki, önnur en íbúðir, pr. m² af heildarstærð húsnæðis | 2.020 kr. | |
| 0,28% af gjaldi einbýlis-, par- og raðhúsa. |
Geri húseigandi eða lóðarhafi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélagsins ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna.
Gjöld samkvæmt þessari grein miðast við byggingarvísitölu í desember 2025 (202,1) og uppfærast 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni.
3. gr. Fráveitugjald.
Af þeim fasteignum í Sveitarfélaginu Árborg sem liggja við vegi, götur eða opin svæði og tengjast fráveitulögnum sveitarfélagsins skal árlega greiða fráveitugjald og skal því varið til að standa straum af kostnaði við fráveitu sveitarfélagsins.
Álagningarstofn gjaldsins skal vera fasteignamat viðkomandi fasteigna. Fjárhæð gjaldsins skal nema:
0,0806% af heildarfasteignamati eignar í A-flokki.
0,17% af heildarfasteignamati eignar í B-flokki.
0,17% af heildarfasteignamati eignar í C-flokki.
Sé ekkert mannvirki á lóð tengt fráveitulögnum sveitarfélagsins greiðist ekki fráveitugjald.
4. gr. Rotþróargjald.
Sveitarfélagið innheimtir árlega rotþróargjald til niðurjöfnunar á kostnaði við hreinsun og tæmingu rotþróa skv. 19.gr samþykktar um fráveitur í Sveitarfélaginu Árborg.
Árlegt rotþróargjald þar sem tæming á sér stað að jafnaði þriðja hvert ár, skal vera eftirfarandi:
| Rotþró 0-6.000 lítra | 20.538 kr./ár | |
| Rotþró > 6.001 lítra | 9.729 kr./m³ |
5. gr. Gjalddagar.
- Stofngjald fráveitu: Gjalddagi stofngjalds fráveitu miðast við útgáfu byggingarleyfis. Gjaldið skal greitt eða um það samið innan 20 daga frá gjalddaga. Heimilt er að semja um greiðslu stofngjalds fráveitu til allt að 18 mánaða frá gjalddaga. Allar greiðslur skulu bera almenna bankavexti.
- Fráveitugjald og rotþróargjald: Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og bæjastjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.
6. gr. Innheimta.
Gera má fjárnám fyrir gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari.
Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari bera dráttarvexti skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá gjalddaga.
Stofngjald fráveitu og fráveitugjald, ásamt áföllnum kostnaði, eru tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði í tvö ár frá gjalddaga.
7. gr. Gildistaka.
Gjaldskrá þessi, sem öðlast þegar gildi, er samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar með heimild í 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009, 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og samþykkt um fráveitur í Sveitarfélaginu Árborg nr. 1403/2023.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1776/2024.
Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar, 3. desember 2025.
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 22. janúar 2026