Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Suðurnesjabær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Suðurnesjabær
Undirritunardagur
31. júlí 2026
Útgáfudagur
6. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 877/2026
31. júlí 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Suðurnesjabæ.
Gauksstaðir, deiliskipulag.
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum 3. júní 2026 tillögu að nýju deiliskipulagi á jörð Gauksstaða, L196408, fyrir ferðaþjónustu. Í tillögunni felst að fyrirhugað er að útbúa gistirými fyrir allt að 50 manns í 15 ferðaþjónustuhúsum auk þjónustubyggingar. Um er að ræða svæði sem er skilgreint sem VÞ6 í aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Suðurnesjabæ, 31. júlí 2026.
Jón Ben Einarsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 6. ágúst 2026