Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Ökuréttindi

Undirritunardagur

18. júní 2026

Útgáfudagur

22. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 701/2026

18. júní 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011.

1. gr.

Við 5. tölul. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður sem orðast svo:

  1. ökutæki sem eru knúin óhefðbundnu eldsneyti, sem um getur í 2. gr. tilskipunar ráðsins 96/53/EB, með leyfilegan hámarksmassa yfir 3.500 kg en sem fer ekki yfir 4.250 kg við flutning á vörum án eftirvagns, þar sem aksturinn er í höndum handhafa ökuskírteinis í flokki B sem var gefið út a.m.k. tveimur árum áður, að því tilskildu að massinn sem fer yfir 3.500 kg sé eingöngu vegna umframmassa knúningskerfisins í tengslum við knúningskerfi ökutækis með sömu mál sem búið er hefðbundnum brunahreyfli með rafkveikju eða þjöppukveikju, og að því tilskildu að flutningsgetan hafi ekki aukist í tengslum við sama ökutæki.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 18. júní 2026.

Eyjólfur Ármannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 22. júní 2026

Tengd mál