Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ísafjarðarbær
Málaflokkur
Sorphreinsun, Ísafjarðarbær
Undirritunardagur
30. október 2025
Útgáfudagur
18. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1183/2025
30. október 2025
GJALDSKRÁ
um meðhöndlun úrgangs í Ísafjarðarbæ.
1. gr.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er heimilt að ákvarða og innheimta gjald fyrir söfnun og meðhöndlun úrgangs, samkvæmt 16. gr. samþykktar nr. 1033/2023 um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, í samræmi við ákvæði 1. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs. Þá er Ísafjarðarbæ heimilt að innheimta gjald fyrir alla aðra meðhöndlun úrgangs, uppsetningau og rekstur nauðsynlegra innviða í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laganna.
2. gr.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að innheimt verði árgjald fyrir hvert ílát á heimili í samræmi við eftirfarandi gjaldskrá:
| Gjöld vegna sorpíláta | Ílát sem eru ≤ 10 m frá hirðubíl | Ílát sem eru > 10 m frá hirðubíl |
| Sorpílát með innra hólfi | ||
| Blandaður úrgangur með innra hólfi fyrir lífrænan úrgang, 240 l | 46.500 kr. | 69.750 kr. |
| Pappír með innra hólfi fyrir plast, 240 l | 28.000 kr. | 42.000 kr. |
| Sorpílát fyrir blandaðan úrgang | ||
| Blandaður úrgangur, 120 l | 34.875 kr. | 52.313 kr. |
| Blandaður úrgangur, 240 l | 69.750 kr. | 104.625 kr. |
| Blandaður úrgangur, 360 l | 104.625 kr. | 156.938 kr. |
| Blandaður úrgangur, 660 l | 191.813 kr. | 287.719 kr. |
| Blandaður úrgangur, 1.100 l | 319.688 kr. | 479.531 kr. |
| Sorpílát fyrir lífúrgang | ||
| Lífúrgangur, 120 l | 23.250 kr. | 34.875 kr. |
| Lífúrgangur, 240 l | 46.500 kr. | 69.750 kr. |
| Sorpílát fyrir pappír | ||
| Pappír, 120 l | 14.000 kr. | 21.000 kr. |
| Pappír, 240 l | 28.000 kr. | 42.000 kr. |
| Pappír, 360 l | 42.000 kr. | 63.000 kr. |
| Pappír, 660 l | 77.000 kr. | 115.500 kr. |
| Pappír, 1.100 l | 128.333 kr. | 192.500 kr. |
| Sorpílát fyrir plast | ||
| Plast, 120 l | 13.200 kr. | 19.800 kr. |
| Plast, 240 l | 18.810 kr. | 28.215 kr. |
| Plast, 360 l | 42.000 kr. | 63.000 kr. |
| Önnur gjöld | ||
| Endurnýjunargjald tunnu 240 l með flutningi á staðfang | Samkvæmt gjaldskrá verktaka | |
| Auka hirðing | 8.287 kr. | |
Auk þess hefur bæjarstjórn ákveðið að fast gjald fyrir rekstur grenndar- og söfnunarstöðva og annan fastan kostnað verði 16.500 kr. fyrir heimili og 8.250 kr. fyrir sumarbústaði og íbúðarhúsnæði með ákvæði um takmörkun á íveru vegna snjóflóðahættu.
Ofangreind gjöld skulu innheimt samhliða fasteignagjöldum.
3. gr.
Móttöku- og urðunargjald rekstraraðila á endurvinnslustöð:
- Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, heyrúlluplast, ýmis spilliefni og úrelt ökutæki.
- Íbúar Ísafjarðarbæjar þurfa ekki að greiða móttökugjald fyrir garðaúrgang.
- Gjald fyrir móttöku í endurvinnslustöð í Ísafjarðarbæ er:
Blandaður/grófur úrgangur 40 kr./kg Timbur 60 kr./kg
4. gr.
Gjaldskrá þessi sem er samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, staðfestist samkvæmt heimild 16. gr. samþykktar um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, skv. lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, til þess að öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1242/2024.
Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 30. október 2025.
Ísafirði, 30. október 2025.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 18. nóvember 2025