Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur, Byggðamál
Undirritunardagur
23. febrúar 2026
Útgáfudagur
24. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 174/2026
23. febrúar 2026
AUGLÝSING
um (1.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.
1. gr.
Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:
Akureyrarbær vegna Grímseyjar (löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnsluskyldu).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Grímseyjar með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
- Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
- Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.
Dalvíkurbyggð (breyting á viðmiðun um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags, heimil skipti á tegundum í vinnslu).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Dalvíkur, Árskógssands og Hauganess með eftirfarandi breytingum:
- Í stað 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum og ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á þannig að 30% úthlutaðs byggðakvóta byggðarlags skal skipt jafnt á alla þá báta úr viðkomandi byggðarlagi sem sækja um byggðakvóta og uppfylla að öðru leyti ákvæði 1. gr. Óski einhver eftir tilteknu magni kvóta, sem er minna en hann á rétt á samkvæmt ákvæði þessu, þá skiptast eftirstöðvar þess hluta byggðakvótans jafnt á milli hinna umsækjendanna. Skipta skal 70% byggðakvóta byggðarlagsins hlutfallslega miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025. Ekkert skip fær þó meira en 35% af þeim 70% sem skipt er samkvæmt lönduðum afla.
- Í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga“ og verður: til vinnslu innan sveitarfélagsins.
- Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsl. svohljóðandi: Þó er vinnsluaðila heimil jöfn skipti, miðað við þorskígildisstuðul, á tegundum við annan vinnsluaðila, og komi þá slík fyrirætlan fram í þeim samningi sem eigandi fiskiskips gerir við fiskkaupanda, og skal sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar.
Fjallabyggð (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan sveitarfélags, vinnsluskylda).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Ólafsfjarðar og Siglufjarðar með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi sveitarfélagi 1. júlí 2025.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025, þó að hámarki 80 þorskígildistonn á fiskiskip.
- Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa í sveitarfélaginu þeim afla sem telja á til byggðakvóta sveitarfélagsins til vinnslu á tímabilinu 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
Grýtubakkahreppur (breyting á viðmiðun um úthlutun).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Grenivíkur með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 1/3 hluti byggðakvótans skiptist jafnt milli þeirra skipa sem sækja um og 2/3 hlutum skal skipt í hlutfalli við úthlutað aflamark sömu skipa 1. september 2025.
Ísafjarðarbær (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun, afmörkun landaðs afla, löndunarskylda, vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Flateyrar, Hnífsdals, Ísafjarðar, Suðureyrar og Þingeyrar með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði a-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, eða frístundaveiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.
- Ákvæði c-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. júlí 2025.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal fyrst úthluta bátum með frístundaleyfi sbr. a-lið, 1 þorskígildistonni á bát, 40% af því sem eftir stendur skal skipt jafnt milli annarra skipa, þó ekki meira, í þorskígildum talið, en viðkomandi bátur landaði á fiskveiðiárinu 2024/2025, afganginum skal skipt hlutfallslega, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, sem landað var innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025.
- Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli sem landað er í sveitarfélaginu úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan sveitarfélagsins, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi sveitarfélags á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
Kaldrananeshreppur (breyting á almennum skilyrðum, löndunarskylda innan byggðarlags, vinnsluskylda innan byggðarlags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Drangsness með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 30% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa þó ekki meira í þorskígildum talið en viðkomandi bátur landaði í þorskígildum á Drangsnesi á fiskveiðiárinu 2025/2026 og 70% skipt hlutfallslega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til Drangsness, miðað við allan landaðan botnfiskafla á Drangsnesi í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa á Drangsnesi þeim afla sem telja á til byggðakvóta Drangsness og til vinnslu innan Drangsness á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
Langanesbyggð (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Bakkafjarðar og Þórshafnar með eftirfarandi breytingum:
- Við 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Skráð stærð fiskiskips er minni en 300 brúttótonn.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi sveitarfélags á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
Norðurþing (breyting á viðmiðum um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Kópaskers og Raufarhafnar með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025.
- Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli sem landað er í sveitarfélagi úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
Strandabyggð (breyting á viðmiðun um úthlutun).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Hólmavíkur með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 25% af úthlutuðum byggðakvóta til byggðarlagsins skal skipt jafnt milli þeirra skipa sem sækja um og 75% skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025.
Suðurnesjabær vegna Garðs (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan sveitarfélags, vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Garðs með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, innan sveitarfélagsins, á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta Garðs og til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
Sveitarfélagið Árborg (vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Eyrarbakka og Stokkseyrar með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
Sveitarfélagið Skagaströnd (breyting á viðmiðun úthlutunar, löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnsluskyldu).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Skagastrandar með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt að teknu tilliti til hámarksúthlutunar hvers flokks (a-b) miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, sem landað var innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025:
- Alls 4,4 þorskígildistonnum skal skipt jafnt milli fiskiskipa með hlutdeild í veiðum á rækju á grunnslóð á Húnaflóa.
- Eftirstöðvum aflamarks skal skipt hlutfallslega milli fiskiskipa að teknu tilliti til 12 þorskígildistonna hámarks til fiskiskips.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
- Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.
Vesturbyggð (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun úthlutunar, sérregla fyrir Tálknafjörð og vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Bíldudals, Brjánslækjar, Patreksfjarðar og Tálknafjarðar með eftirfarandi breytingum:
- Í stað orðsins „byggðarlagi“ í b- og c-lið 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: sveitarfélagi.
- Ákvæði 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og orðast svo:
Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut Tálknafjarðar, auk þess aflamarks Tálknafjarðar sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.–3. gr., eftir því sem við á, þannig að 50% af úthlutuðum byggðakvóta Tálknafjarðar skal skipt jafnt milli fiskiskipa sem skráð eru í Tálknafirði 1. júlí 2025 og sækja um byggðakvóta; óski umsækjandi eftir minna magni en honum ber samkvæmt jafnskiptingu skal eftirstöðvum þess hluta jafnt skipt milli annarra umsækjenda; eftirstöðvum heildarbyggðakvóta sveitarfélagsins, þ.m.t. þeim hluta Tálknafjarðar sem eftir stendur að lokinni framangreindri skiptingu, skal skipt þannig að 80% skal úthlutað hlutfallslega milli umsækjenda sem skráðir eru í sveitarfélaginu 1. júlí 2025, miðað við allan landaðan afla í sveitarfélaginu á fiskveiðiárinu 2024/2025, þó þannig að ekkert fiskiskip fái meira en 50% af þeim 80% sem úthlutað er samkvæmt þessum málslið; 20% af eftirstöðvum heildarbyggðakvóta sveitarfélagsins skal jafnt dreift á umsækjendur sem skráðir eru í sveitarfélaginu 1. júlí 2025; hámarksúthlutun samkvæmt framangreindu má ekki vera meiri en heildarafli viðkomandi fiskiskips á fiskveiðiárinu 2024/2025 og reynist úthlutun samkvæmt framangreindum reiknireglum hærri en heildarafli einstakra fiskiskipa skal umframmagni dreift á aðra umsækjendur í samræmi við veiðireynslu fiskveiðiársins 2024/2025. - Í stað 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: Á Bíldudal, Brjánslæk og Patreksfirði er fiskiskipum skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026, en á Tálknafirði er fiskiskipum skylt að landa 50% þess byggðakvóta sem úthlutað er samkvæmt 1. mgr. 4. gr. innan byggðarlagsins til vinnslu innan sveitarfélagsins á sama tímabili og öðrum afla sem telst til byggðakvóta skal landa til vinnslu innan sveitarfélagsins á sama tímabili.
Vopnafjarðarhreppur (vinnsluskylda óbundin staðsetningu).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Vopnafjarðar með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlags, eða í nærliggjandi sveitarfélögum, á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 23. febrúar 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
B deild — Útgáfudagur: 24. febrúar 2026