Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing ytra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
18. maí 2026
Útgáfudagur
2. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 621/2026
18. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.
Veiðivötn, óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 13. maí 2026 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Veiðivötn. Með þessari breytingu er lagt til að gera breytingar á þrem svæðum B, C og E með það að markmiði að bæta nýtingu, fjölga húsum um tvö frá gildandi skipulagi og þar með fjölga gestum sem geta gist á hverjum tíma. Heildarfjöldi gesta verður áfram innan skilgreiningar aðalskipulags, innan við 200 gestir á hverjum tíma. Jafnframt eru skipulagsmörk aðlöguð að því svæði sem starfsemi nær yfir og verður ein lóð, K, skilgreind fyrir svæðið í heild. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hellu, 18. maí 2026.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 2. júní 2026