Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
14. janúar 2022
Útgáfudagur
14. janúar 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 17/2022
14. janúar 2022
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1200/2019, um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglnanna:
- 1. málsl. 1. mgr. 10. gr. orðast svo: Seðlabankinn getur tekið við eftirfarandi tryggingum í viðskiptum við bankann:
- 6. tölul. 1. mgr. orðast svo: Sértryggð skuldabréf skv. lögum nr. 11/2008, um sértryggð skuldabréf. Tryggingasafn sértryggðs skuldabréfs skal eingöngu samanstanda af skuldabréfum tryggðum með veði í íbúðarhúsnæði hér á landi.
- Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, sem verður 8. tölul., svohljóðandi: Einstaka veðbréf með veð í viðskiptabréfum, enda sé þar um að ræða veðgerning útgefinn af fjármálafyrirtæki (lánastofnun), með sjálfsvörsluveði í skuldabréfum útgefnum af einstaklingum eða lögaðilum sem tryggð eru með veði í fasteignum, til samræmis við 43. gr. laga nr. 75/1997 um samningsveð. Veðbréf með veði í viðskiptabréfum skal vera á stöðluðu samningsformi sem Seðlabankinn samþykkir og skal það að mati Seðlabankans vera tryggt með nægjanlega góðum veðum, veita nægan aðgang að upplýsingum um stöðu og mat undirliggjandi trygginga á hverjum tíma, veita fullnægjandi réttarvernd og vera að öðru leyti nægjanleg trygging að mati bankans. Ákvæði 11. gr. og 12. gr. eiga við um veðbréf með veði í viðskiptabréfum eftir því sem við á.
- Við bætist ný málsgrein, sem verður 5. mgr., svohljóðandi: Seðlabankinn getur hvenær sem er hafnað tryggingu í viðskiptum við bankann.
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 1. mgr. 19. gr. og 2. mgr. 46. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019, taka þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 345/2020, um breytingu á reglum nr. 1200/2019 um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands. Reglur þessar öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 14. janúar 2022.
| Ásgeir Jónsson | Rannveig Júníusdóttir | |
| seðlabankastjóri. | framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 14. janúar 2022