Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál, Sveitarfélagið Árborg

Undirritunardagur

28. ágúst 2026

Útgáfudagur

31. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 940/2026

28. ágúst 2026

GJALDSKRÁ

Selfossveitna.

1. gr.

Selfossveitur bs. selja afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt gjaldskrá þessari og reglugerð Selfossveitna fyrir heitt vatn. Gjaldskráin gildir á öllu orkuveitusvæði Selfossveitna. Á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggst virðisaukaskattur og önnur gjöld samkvæmt gildandi lögum og reglum á hverjum tíma. Virðisaukaskattur er 11% til húshitunar og 24% vegna annarrar notkunar.

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari fylgja byggingarvísitölu (júní 2026 – 205,7 stig).

Gjaldskrá þessi skal uppfærast tvisvar á ári n.t.t. í janúar og júlí ár hvert og er stjórn Selfossveitna veitt heimild til þess.

2. gr. Notkunargjald.

Heitt vatn er selt samkvæmt rúmmetramælingu.

I. Afnot af heitu vatni – verð er án orku- og virðisaukaskatts.

H.1 Heitt vatn um rennslismæli
  i. Heimili og fyrirtæki < 1" 203,80 kr./m³
  ii. Fastagjald 24.335 kr./ár
H.2 Heitt vatn um rennslismæli
  iii. Stórnotendur > 1" 203,80 kr./m³
  iv. Fastagjald 34.636 kr./ár
H.5 Heitt vatn um hemil
  v. Heitt vatn um hemil. Lágmarksmagn um hemil eru 4 l/m 56.584 kr./m³
  vi. Fastagjald 34.636 kr./ár
H.6 Heitt vatn um rennslismæli
  vii. Almenningssundlaugar    
  viii. Sumar (1. maí - 30. september) 102,85 kr./m³
  ix. Vetur (1. október - 30. apríl) 123,80 kr./m³
  x. Fastagjald 60.994 kr./ár

Ekki er veittur afsláttur vegna takmarkana á afhendingu heits vatns.

Selfossveitum eru ekki skylt að veita afslátt af sölu heits vatns vegna lágs hitastigs þess á afhendingarstað.

3. gr. Stofngjöld hitaveitu.

Almennt verð heimlagna gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verðin gilda ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Geri húseigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélags t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Húseigandi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.

I. Þéttbýlisstaðir, Eyrarbakki, Selfoss og Stokkseyri.

Neðangreint verð gildir þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 30 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Stærð heimæðar fyrir almenna upphitun tekur mið af rúmmáli húsnæðis en stærð heimæðar fyrir aðra notkun ákvarðast af tilgreindri vatnsþörf í umsókn.

Húsnæði þarf að vera komið á byggingarstig B2 samkvæmt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun svo hægt sé að sækja um heimæð.

  Grunngjald.
Heimæð, DN 20 stál eða PEX-25 460.995 kr.
Heimæð, DN 25 stál eða PEX-32 677.292 kr.
Heimæð, DN 32 stál eða PEX-40 773.102 kr.
Heimæð, DN 40 stál eða PEX-50 925.604 kr.
Heimæð, DN 50 stál 1.533.660 kr.
Heimæð, DN 65 stál 2.529.677 kr.

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 65 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.

Gjald vegna breytinga eða færslu heimæða/inntaka eða aftengingu er að lágmarki 25% af heimæðargjaldi.

Heimilt er að falla frá þessu gjaldi sé komið að endurnýjun lagna.

Frostálag á gunngjald er 20%.

II. Holtabyggð, Tjarnabyggð, byggð við Votmúlaveg og bæir austan við Stokkseyri.

Neðangreint verð gildir þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 70 m, 1,4% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Stærð heimæðar fyrir almenna upphitun tekur mið af rúmmáli húsnæðis en stærð heimæðar fyrir aðra notkun ákvarðast af tilgreindri vatnsþörf í umsókn.

  Grunngjald
Heimæð, DN 20 stál eða PEX-25 1.069.614 kr.
Heimæð, DN 25 stál eða PEX-32 2.140.898 kr.

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja auka tengigrind greiðst 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar í þéttbýli. Kostnaðarverð stærri heimæða en 25 mm stál/32 mm PEX er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu. Ídráttarrör skulu vera 18 m að lengd frá húsi.

Gjald vegna breytinga eða færslu heimæða/inntaka eða aftengingu er að lágmarki 25% af heimæðargjaldi.

Heimilt er að falla frá þessu gjaldi sé komið að endurnýjun lagna.

Frostálag á grunngjald er 20%.

III. Bráðabirgðatengingar hitaveitu.

Vinnuskúravatn og bráðabirgðatenging í húsnæði á byggingastigi B1. Vinnuskúravatn og bráðabirgðatenging gildir í 12 mánuði frá tengingu. Sé húsnæði ekki komið á byggingarstig B2 að þeim tíma liðnum þarf að endurnýja umsókn og greiða 20% af bráðabirgðagjaldi viðkomandi stærðar aftur. Hægt er að endurnýja tvisvar. Þegar bygging er komin á byggingarstig B2 uppfærist umsóknin og umsækjanda er sendur reikningur fyrir heimæð.

  Grunngjald
Vinnuskúravatn 138.287 kr.
Bráðabirgðatenging DN20 eða PEX-25 138.287 kr.
Bráðabirgðatenging DN25 eða PEX-32 203.188 kr.
Bráðabirgðatenging DN32 eða PEX-40 231.931 kr.
Bráðabirgðatenging DN40 eða PEX-50 277.681 kr.
Bráðabirgðatenging DN50 460.098 kr.
Bráðabirgðatenging DN65 758.903 kr.

Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengigrind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raunkostnað. Innheimt er hefðbundið gjald fyrir notkun samkvæmt mæli á bráðabirgðatengingum.

IV. Innheimta, lokanir og sérstakar aðstæður.

Innheimtugjald1 2.128 kr.
Nýr mælir2 30.144 kr.
Lokunargjald/opnunargjald3 13.191 kr.
Opnunargjald utan dagvinnutíma 26.036 kr.
Aðstaða ekki fullnægjandi/endurkomugjald4 22.827 kr.
Breyting/færsla/aftenging á inntaki, lágmarksgjald5 107.794 kr.
Lokunargjald ef grafa þarf niður að heimæð6 420.702 kr.

1 Innheimtugjald er lagt á þá sem fá send lokunarbréf í pósthólf sitt á island.is vegna vanskila notkunargjalda.

2 Gjald ef mælir hefur orðið fyrir skemmdum og setja þarf upp nýjan. Verð miðast við 15 mm mæli.

3 Heimilt er að loka fyrir heimæðar hjá þeim sem vanrækja að greiða notkunargjald að undangenginni skriflegri aðvörun.

4 Séu starfsmenn veitunnar kallaðir til að leggja heimtaug og aðstaða uppfyllir ekki tæknilega tengiskilmála hitaveitna og starfsmenn þurfa frá að hverfa, hlýst af því kostnaður.

5 Gjaldfært í samræmi við raunkostnað en að lágmarki 105.148 kr.

6 Gjald fyrir innheimtuaðgerð þar sem nauðsynlegt er að grafa niður á heimæð.

Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, staðfestist hér með til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis, nr. 70/2026.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 28. ágúst 2026.

F. h. r.

Jón Ásgeirsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild — Útgáfudagur: 31. ágúst 2026

Tengd mál