Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Suðurnesjabær
Málaflokkur
Vatnamál, Suðurnesjabær
Undirritunardagur
10. desember 2025
Útgáfudagur
30. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1563/2025
10. desember 2025
GJALDSKRÁ
vatnsveitu í þéttbýlinu í Sandgerði, Suðurnesjabæ.
1. gr. Gjaldskylda.
Suðurnesjabær innheimtir gjald fyrir lagningu heimæðar skv. 5. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004.
Jafnframt innheimtir sveitarfélagið vatnsgjald og notkunargjald skv. 6. og 7. gr. laganna.
2. gr. Ráðstöfun gjalda.
Tekjum sveitarfélagsins vegna heimæðargjalds vatnsveitu skal varið til vatnsveituframkvæmda og skal gjaldið taka mið af gerð, stærð og lengd heimæða.
Vatnsgjald, ásamt öðrum tekjum vatnsveitu, skal standa undir rekstri vatnsveitunnar, þ.m.t. fjármagnskostnaði, og fyrirhuguðum stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun veitunnar.
3. gr. Heimæðargjald vatnsveitu.
Heimæðargjald vatnsveitu fylgir byggingarvísitölu. Grunnvísitala er byggingarvísitala nóvembermánaðar 2025, 126,4 stig.
| Þvermál heimæðar PE- mm | Verð í kr. miðast við byggingarvísitölu hvers mánaðar. Grunnvísitala er 126,4 stig í nóvember 2025 | Verð í kr. pr. metra umfram 30 metra |
| 32 | 423.139 kr. | 6.400 kr. |
| 40 | 592.394 kr. | 6.400 kr. |
| 50 | 846.276 kr. | 6.400 kr. |
| 63 | 1.198.892 kr. | 7.550 kr. |
| 75 | 1.622.029 kr. | 8.750 kr. |
| 90 | 2.115.694 kr. | 9.900 kr. |
| 110 | 2.961.967 kr. | 11.100 kr. |
| Tenging til bráðabirgða | 112.850 kr. |
Gjöldin miðast við að ídráttarrör fyrir heimlagnir hafi verið lagt á frostfríu dýpi frá tengistað vatnsveitu sveitarfélagsins við lóðamörk, að tengistað (inntaksstað) mannvirkis, og að lega og frágangur ídráttarrörsins hafi verið tekin út og samþykkt af starfsmönnum vatnsveitu.
Innifalið í heimæðargjaldi er allt að 30 metra lögn. Ef heimæð er lengri en 100 metrar skal samið sérstaklega um heimæðargjald. Heimæðargjald fyrir aðrar stærðir en nefndar eru er reiknað út hjá vatnsveitu sveitarfélagsins.
4. gr.Aukagjöld vegna sérstakra aðstæðna.
Við sérstakar aðstæður, s.s. vegna frosts í jörðu og sprengingar á klöpp skal greitt sérstakt álag er nemur 25% sem leggst ofan á heimæðargjald skv. 3. gr.
Þurfi að koma til dælingar vegna vatnsaga við lagningu heimæða, skal lóðarhafi greiða eftirfarandi:
Vatnsdæla, 7.900 kr./sólarhring.
Rafstöð fyrir dælu, 16.000 kr./sólarhring
.
Heimilt er að krefja byggingaraðila um greiðslu fyrir tengingu og aftengingu á byggingarvatni samkvæmt útlögðum kostnaði vatnsveitu. Sama gildir ef ídráttarrör vantar eða ídráttarrör reynast ónothæf.
5. gr. Vatnsgjald.
Árlega skal greiða vatnsgjald af öllum fasteignum i sveitarfélaginu sem vatns geta notið.
Álagningarstofn gjaldsins skal vera fasteignamat viðkomandi fasteigna. Fjárhæð gjaldsins skal nema:
0,110% af heildarfasteignamati eignar í A – flokki (íbúðarhúsnæði).
0,150% af heildarfasteignamati eignar í B – flokki (opinberar byggingar).
0,150% af heildarfasteignamati eignar í C – flokki (atvinnuhúsnæði og aðrar eignir).
6. gr. Notkunargjald.
Þar sem vatn frá vatnsveitu er notað til atvinnustarfsemi eða annars en venjulegra heimilisstarfa, skal innheimt sérstakt notkunargjald. Fjárhæð notkunargjaldsins er 27,9 kr. á rúmmetra (m³) vatns samkvæmt mælingu.
Notkunargjaldið tekur mið af vísitölu byggingarkostnaðar, grunnvísitala nóvembermánaðar 2025 er 126,4 stig. Gjaldið skal uppfært miðað við vísitöluhækkanir einu sinni á ári, í janúar.
Í þeim tilvikum þegar um óvenjumikil kaup á vatni er að ræða eða vatn er keypt til sérstakrar framleiðslu er heimilt að gera sérstakt samkomulag við kaupanda um endurgjald fyrir vatnið.
7. gr. Mælaleiga.
Þeim sem greiða skulu notkunargjald skv. 6. gr. skulu látnir í té vatnsmælar. Notandi skal sjá fyrir aðstöðu fyrir mæli. Vatnsveita er eigandi mælanna og skal greidd fyrir þá ársleiga sem hér segir:
| Stærð mælis | Mælaleiga á ári |
| < ∅20 mm | 20.593 kr. |
| < ∅32 mm | 26.771 kr. |
| < ∅40 mm | 29.859 kr. |
| < ∅50 mm | 36.035 kr. |
| < ∅65 mm | 43.758 kr. |
| < ∅80 mm | 59.202 kr. |
| > ∅100 mm | 115.835 kr. |
Mælaleigan tekur mið af vístölu byggingarkostnaðar. Grunnvísitala er vísitala nóvembermánaðar 2025, 126,4 stig.
8. gr. Gjalddagar.
- Heimæðargjald: Gjalddagi heimæðargjalds vatnsveitu miðast við útgáfu byggingarleyfis. Í þeim tilvikum er lóðarhafi, með samþykki framkvæmda- og skipulagsráðs, nýtir lóð undir annað en byggingu mannvirkis miðast gjalddagi heimæðargjalds við tengingu heimæðar. Gjöldin skulu greidd eða um þau samið innan 20 daga frá gjalddaga.
- Vatnsgjald: Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.
- Notkunargjald: Gjalddagar notkunargjalds eru á þriggja mánaða fresti. Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga.
- Mælaleiga: Gjalddagi leigugjalds fyrir mæli er 1. febrúar. Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga.
9. gr. Greiðsluskilmálar.
Heimilt er að semja um greiðslur heimæðargjalda vatnsveitu til allt að 18 mánaða frá gjalddaga. Allar greiðslur skulu bera almenna bankavexti.
10. gr. Innheimta o.fl.
Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðargjalds en notandi, ef hann er annar en fasteignareigandi, ber ábyrgð á greiðslu notkunargjalds.
Gjöldin njóta lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum í næstu tvö ár eftir gjalddaga með
forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
Heimilt er að loka fyrir heimæðar hjá þeim sem vanrækja að greiða notkunargjald að
undangenginni skriflegri aðvörun.
Notkunargjald og leigugjald fyrir mæli, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum er heimilt að taka fjárnámi.
11. gr. Gildistaka.
Gjaldskrá þessi, sem öðlast þegar gildi, er samin og samþykkt af bæjarstjórn með heimild í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga, 11. gr. reglugerðar um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005 og III. kafla vatnalaga nr. 15/1923. Jafnframt fellur brott samþykkt sama efnis nr. 1677/2024.
Samþykkt á 86. fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar 10. desember 2025.
Suðurnesjabæ, 10. desember 2025.
Magnús Stefánsson bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025