Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Bláskógabyggð
Undirritunardagur
25. júní 2026
Útgáfudagur
14. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 803/2026
25. júní 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulag, Fell, L177478, landbúnaðarsvæði (Engjaholt) breytt í verslun og þjónustu.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem tekur til lands Fells, L177478 (Engjaholt). Deiliskipulagssvæðið hefur verið minnkað þannig að það nær ekki yfir landið norðan Biskupstungnabrautar og er um 11 ha að stærð. Samkvæmt fyrirliggjandi aðalskipulagsbreytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027, dagsett 23. ágúst 2024 og endurskoðaðri 14. febrúar 2025, 2. maí 2025 og 23. febrúar 2026 sem tók gildi 16. júní 2026, er landið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði, merkt VÞ45. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir einni lóð. Á lóðinni er gert ráð fyrir 100 litlum gistihúsum til útleigu að stærðinni 25-40 fm. Heildarbyggingarmagn lítilla gistihúsa til útleigu verður að hámarki 3.500 fm og í þeim geta verið allt að 200 gestir. Í tengslum við útleiguhúsin er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsum að hámarki 2.000 fm. Á reitnum er einnig gert ráð fyrir hóteli ásamt veitingarekstri og þjónustuhúsi. Heildarbyggingarmagn hótels og bygginga því tengdu verði að hámarki 8.500 fm og það geti hýst allt að 200 gesti. Heildarbyggingarmagn á byggingarreitnum er að hámarki 14.000 fm. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Samþykkt í sveitarstjórn 4. febrúar 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 25. júní 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 14. júlí 2026