Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Leigubifreiðar

Undirritunardagur

18. mars 2026

Útgáfudagur

25. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 23/2026

18. mars 2026

LÖG

um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022 (öryggi og starfsumhverfi).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Á eftir orðunum „gerst sekur um refsiverða háttsemi“ í 2. málsl. 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 2. málsl. 3. tölul. 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: eða brotið ítrekað eða með alvarlegum hætti gegn lögum og reglugerðum sem varða starfsemina.

2. gr.

2. málsl. 1. mgr. 7. gr. laganna fellur brott.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 8. gr. laganna:

  1. Eftirfarandi breytingar verða á 2. málsl.:
    1. Í stað orðanna „halda rafræna skrá með gervihnattaupplýsingum“ kemur: tryggja skráningu gervihnattaupplýsinga.
    2. Á eftir orðunum „meðan á ferðinni stendur“ kemur: í rafræna skrá leigubifreiðastöðvar.
  2. 4. málsl. fellur brott.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Rekstrarleyfishafi skal hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð sem fengið hefur starfsleyfi hjá Samgöngustofu. Skal hann skila leigubifreiðastöð, sem hann hefur afgreiðslu á, tilskildum upplýsingum skv. 3. og 4. mgr. Einnig skal rekstrarleyfishafi tryggja að allar greiðslur séu skráðar í gjaldmæli eða skráðar með öðrum fullnægjandi hætti í þeim tilvikum þegar ferð er seld fyrir fyrirframumsamið áætlað eða endanlegt heildargjald og að upplýsingum þar um sé skilað til leigubifreiðastöðvarinnar.
  2. Í stað orðsins „og“ í 2. mgr. kemur: mgr. og 1. málsl.
  3. Á eftir 2. mgr. koma fjórar nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

    Leigubifreiðastöð skal búa yfir upplýsingum um:
    1. Rekstrarleyfishafa sem hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöðinni.
    2. Atvinnuleyfishafa sem stunda leigubifreiðaakstur með fólksbifreið í eigu eða undir umráðum rekstrarleyfishafa sem hefur afgreiðslu á leigubifreiðastöðinni.
    3. Leigubifreiðar sem eru tengdar leigubifreiðastöðinni og skráningarnúmer þeirra.
    4. Gjaldmæla og raðnúmer þeirra í leigubifreiðum sem tengdar eru leigubifreiðastöðinni og seldar eru á leigu fyrir gjald sem tekur mið af ekinni vegalengd eða þeim tíma sem ferðin tekur.
    5. Greiðslufyrirkomulag og endanlegt heildarverð í leigubifreiðum sem tengdar eru leigubifreiðastöðinni þegar ferð er seld fyrir fyrirframumsamið áætlað eða endanlegt heildargjald áður en hún hefst.
    6. Fjölda lausra leigubifreiða, staðsetningu þeirra og þjónustusvæði.
    Leigubifreiðastöð skal jafnóðum og með stafrænum hætti safna og geyma upplýsingar sem skráðar eru í rafræna skrá skv. 4. mgr. 8. gr. og 3. mgr. 12. gr. Staðsetningarupplýsingarnar skulu vera dulkóðaðar og varðveittar hjá leigubifreiðastöð í 60 daga frá því að ferð var ekin og telst leigubifreiðastöðin ábyrgðaraðili skrárinnar. Óheimilt er að vinna persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim að tryggja öryggi og stuðla að neytendavernd og til að viðhafa megi eftirlit með því að starfsemi fari fram lögum samkvæmt.

    Samgöngustofa hefur eftirlit með gæðum og öryggi gagna í stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva. Stafræn kerfi leigubifreiðastöðva skulu, á kostnað leigubifreiðastöðva, tekin út að minnsta kosti árlega af sjálfstæðum og óháðum aðila sem samþykktur hefur verið af Samgöngustofu. Sérstök áhersla skal lögð á öryggi og gæði gagna. Úttektaraðili skal gera skýrslu um framkvæmd úttektarinnar og skila til Samgöngustofu. Samgöngustofa getur látið framkvæma viðbótarúttekt telji stofnunin tilefni til. Komi í ljós verulegir annmarkar í viðbótarúttekt, sem varðað geta öryggi leigubifreiðaþjónustu, er Samgöngustofu heimilt að láta leigubifreiðastöð bera kostnað af úttektinni.

    Leigubifreiðastöð skal vera með farveg fyrir kvartanir neytenda yfir verði og gæðum þjónustu. Leyfishafar skulu tryggja að neytendur séu upplýstir um þennan farveg og um möguleika á að kvarta til viðeigandi stjórnvalda.
  4. Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Verði leigubifreiðastöð þess vör eða hafi grun um að rekstrar- eða atvinnuleyfishafar sem hafa afgreiðslu á stöðinni fari ekki eftir fyrirmælum laga og reglugerða um leigubifreiðaakstur skal hún tilkynna viðeigandi stjórnvöldum þar um.

5. gr.

9. tölul. 1. mgr. 18. gr. laganna orðast svo: 12. gr. um skyldur leigubifreiðastöðvar og um skyldur rekstrarleyfishafa.

6. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2026 nema ákvæði 1. gr. sem öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 18. mars 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Eyjólfur Ármannsson.

A deild — Útgáfudagur: 25. mars 2026

Tengd mál