REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2025/2397
frá 24. nóvember 2025
um breytingar á reglugerð (ESB) 2016/1686 um viðbótarþvingunaraðgerðir gegn
Íslamska ríkinu (Da‘esh) og Al-Qaida-samtökunum og einstaklingum,
lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem þeim tengjast
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/2398 frá 24. nóvember 2025 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2016/1693 um þvingunaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu (Da‘esh) og Al-Qaida-samtökunum og einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum sem þeim tengjast (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Með reglugerð ráðsins (ESB) 2016/1686 (2) er ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1693 (3) komið til framkvæmda.
2) Í ljósi þeirrar áframhaldandi ógnar sem stafar af Íslamska ríkinu (Da‘esh) og Al-Qaida-samtökunum og einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum sem þeim tengjast samþykkti ráðið 24. nóvember 2025 ákvörðun (SSUÖ) 2025/2398 í því skyni að bæta einni rekstrareiningu við á skrána yfir einstaklinga, hópa, fyrirtæki og rekstrareiningar sem þvingunaraðgerðir taka til.
3) Þvingunaraðgerðir samkvæmt ákvörðun ráðsins 2010/788/SSUÖ (4) og reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 (5) taka þegar til þeirrar rekstrareiningar. Til að tryggja samræmda framkvæmd aðgerða til frystingar eigna er með ákvörðun (SSUÖ) 2025/2398 viðeigandi þvingunaraðgerðum, sem eiga við þessa rekstrareiningu samkvæmt þeirri ákvörðun, frestað eins lengi og þær aðgerðir sem kveðið er á um í ákvörðun 2010/788/SSUÖ gilda um hana.
4) Þessar ráðstafanir falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg, einkum til að tryggja að þeim verði beitt með sama hætti í öllum aðildarríkjunum.
5) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) 2016/1686 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Eftirfarandi málsgrein bætist við 4. gr. reglugerðar (ESB) 2016/1686:
„5. Fresta skal þeim aðgerðum sem um getur í 1. og 2. mgr. 2. gr., að því marki sem þær eiga við um Lýðræðissveitir bandamanna (e. Allied Democratic Forces), eins lengi og þær aðgerðir sem mælt er fyrir um í 1. og 2. mgr. 2. gr. reglugerðar ráðsins (EB) nr. 1183/2005 (6) gilda um þá rekstrareiningu.“
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn sem hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 24. nóvember 2025.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
L. LØKKE RASMUSSEN
(1) Stjtíð. ESB L, 2025/2398, 24.11.2025, ELI: ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2025/2398/oj.
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/1686 frá 20. september 2016 um viðbótarþvingunaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu (Da‘esh) og Al-Qaida-samtökunum og einstaklingum og lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem þeim tengjast (Stjtíð. ESB L 255, 21.9.2016, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2016/1686/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1693 frá 20. september 2016 um þvingunaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu (Da‘esh) og Al-Qaida-samtökunum og einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum sem þeim tengjast og um niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2002/402/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 255, 21.9.2016, bls. 25, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2016/1693/oj).
(4) Ákvörðun ráðsins 2010/788/SSUÖ frá 20. desember 2010 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (Stjtíð. ESB L 336, 21.12.2010, bls. 30, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2010/788/oj).
(5) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 frá 18. júlí 2005 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (Stjtíð. ESB L 193, 23.7.2005, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2005/1183/oj).
(6) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 frá 18. júlí 2005 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (Stjtíð. ESB L 193, 23.7.2005, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2005/1183/oj).