Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

17. apríl 2026

Útgáfudagur

5. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 436/2026

17. apríl 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Flóahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Loftsstaðir-Vestri, L165512, breytt stærð byggingarreita, kúluhús-tjaldhýsi.

Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Loftsstaða-Vestri, L165512. Í breytingunni felst að byggingarreitur B4 er færður til og þar verður heimilt að setja upp hús að hámarki 30 m² og gufu að hámarki 25 m². Byggingarreitur B3 breytist að lögun og þar er heimilt að reisa 15 kúluhús sem eru um 4,6 m í þvermál vestan við veginn. Austan við veginn er heimilt að setja upp þjónustuhús að hámarki 150 m².

Samþykkt í sveitarstjórn 20. janúar 2026.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 17. apríl 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 5. maí 2026

Tengd mál