Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
5. desember 2014
Útgáfudagur
19. desember 2014
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1095/2014
5. desember 2014
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað orðanna „sbr. 5. mgr. þessarar greinar og samþykktir um þjónusturannsóknir og kennslu skv. 6. mgr. þessarar greinar“ í lokamálslið 5. mgr. 12. gr. kemur: sbr. 6. mgr. þessarar greinar og samþykktir um þjónusturannsóknir og kennslu skv. 7. mgr. þessarar greinar.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 84. gr.:
- 16. mgr., um MA-nám í blaða- og fréttamennsku, fellur niður.
-
Á
eftir
núverandi
20.
mgr.,
um
MA-nám
í
norrænni
trú,
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
MA-nám í aðferðafræði er sjálfstætt 120 eininga nám að loknu BA-prófi eða sambærilegu háskólaprófi.
3. gr.
Á eftir staflið f í upptalningu kennslugreina í 1. mgr. 92. gr. bætist við nýr stafliður, svohljóðandi: Til MA-prófs í blaða- og fréttamennsku.
4. gr.
Í stað orðanna „sbr. f. lið 1. mgr.“ í 10. mgr. 101. gr. kemur: sbr. 3. málsl. g. liðar 1. mgr.
5. gr.
Í stað orðanna „sbr. 2. mgr. þessarar greinar“ í 8. mgr. 105. gr. kemur: sbr. 3. málsl. e. liðar 1. mgr. þessarar greinar.
6. gr.
2. málsliður 12. mgr. 107. gr. breytist og orðast svo: Stærð rannsóknarverkefnis skal vera 60 námseiningar.
7. gr.
Í stað orðanna „sbr. 5. mgr.“ í 14. mgr. 109. gr. kemur: sbr. 2. mgr.
8. gr.
Í stað orðanna „sbr. 5. mgr.“ í 21. mgr. 111. gr. kemur: sbr. 2. mgr.
9. gr.
Í stað orðanna „sbr. 6. mgr.“ í 14. mgr. 113. gr. kemur: sbr. 2. mgr.
10. gr.
Í stað orðanna „sbr. 5. mgr.“ í 14. mgr. 115. gr. kemur: sbr. 2. mgr.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 119. gr.:
- Upptalning kennslugreina til B.Ed.-prófs í a. lið 1. mgr. breytist og orðast svo: Leikskólakennarafræði, grunnskólakennarafræði og kennslufræði verk- og starfsmenntunar.
- Upptalning kennslugreina til M.Ed.-prófs í b. lið 1. mgr. breytist og orðast svo: Leikskólakennarafræði, menntunarfræði leikskóla, grunnskólakennarafræði, kennslufræði grunnskóla, náms- og kennslufræði og kennslufræði framhaldsskóla.
- Upptalning kennslugreina til MA-prófs í c. lið 1. mgr. breytist og orðast svo: Náms- og kennslufræði.
-
2.
mgr.
orðast
svo:
Kennaradeild er skipað í þrjár námsbrautir, sbr. ákvæði 21. gr. þessara reglna: Námsbraut í leikskólakennarafræði, námsbraut í grunnskólakennarafræði og námsbraut í kennslufræði framhaldsskóla og háskóla. - Í stað tölunnar „20“ í 2. málsl. 9. mgr. kemur: 30.
- Í stað orðanna „BA- eða BS-prófi“ í 1. málsl. 15. mgr. kemur: MA- eða MS-prófi.
12. gr.
Á eftir 12. mgr. 121. gr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
Diplómanám í uppeldis- og menntunarfræði er sjálfstætt 60 eininga nám á meistarastigi.
13. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 5. desember 2014.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 19. desember 2014