Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Húnaþing vestra

Undirritunardagur

23. júní 2026

Útgáfudagur

7. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 776/2026

23. júní 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra vegna Melstaðar, tilfærslu VÞ9.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 23. júní 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026, sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. maí 2026.

Í breytingunni felst tilfærsla verslunar- og þjónustureits VÞ9 um 500 m suðvestur frá núverandi staðsetningu. Ekki er gert ráð fyrir stækkun reitsins og ákvæði standa óbreytt.

Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 23. júní 2026.

Guðrún Lára Sveinsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 7. júlí 2026

Tengd mál