Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

7. apríl 2017

Útgáfudagur

26. apríl 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 350/2017

7. apríl 2017

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

2. málsl 6. mgr. 75. gr. reglnanna fellur brott.

2. gr.

17. mgr. 86. gr. reglnanna breytist og orðast svo:

Diplómanám í fjölmenningu, margbreytileika og flóttafólki er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu BA‑prófi eða sambærilegu háskólaprófi á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda. Að jafnaði er krafist fyrstu einkunnar (7,25).

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 92. gr. reglnanna:

d. liður 1. mgr., um kennslu til MA-prófs í Evrópufræðum, fellur brott og breytist röð þeirra stafliða sem á eftir koma sem því nemur.

17. og 18. mgr. falla brott.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 109. gr. reglnanna:

  1. Í upptalningu kennslugreina til BS-prófs í a. lið 1. mgr. fellur brott orðið „finnska“.
  2. 3. mgr. breytist og orðast svo:
    Mála- og menningardeild er skipað í eftirtaldar námsbrautir, sbr. ákvæði 21. gr. þessara reglna: Enska; þýska og Norðurlandamál; asísk fræði og rússneska; rómönsk og klassísk mál.
  3. 4. málsl. 7. mgr. fellur brott.
  4. Í núverandi 5. málsl. 7. mgr. falla brott orðin „þ.m.t. lokaverkefni“.
  5. Á eftir núverandi 6. málsl. 7. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Nánar er kveðið á um þetta í námsskipunarreglum einstakra námsleiða deildarinnar.
  6. Í lok 2. málsl. 8. mgr. bætast við orðin: og a.m.k. 10 eininga lokaverkefni.

5. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 7. apríl 2017.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2017

Tengd mál