Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

21. janúar 2026

Útgáfudagur

5. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 107/2026

21. janúar 2026

REGLUR

um breytingu á reglum um alþjóðlegt meistaranám í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti (LL.M. in Natural Resources Law and International Environmental Law) við lagadeild Háskóla Íslands, nr. 1055/2006.

1. gr.

Við reglurnar bætist ný grein, 1. gr., svohljóðandi:

Alþjóðlegt meistaranám í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti (LL.M. in Natural
Resources Law and International Environmental Law) við lagadeild Háskóla Íslands verður ekki í boði eftir skólaárið 2025/2026. Lagadeild er þó heimilt að beita reglum þessum í tilviki nemenda sem áður hafa verið innritaðir í námið og óska eftir að innrita sig að nýju eigi síðar en 1. febrúar 2027 og ljúka námi sínu innan árs frá innritun.

2. gr.

Núverandi 1. gr. reglnanna verður 1. gr. a.

3. gr.

Við 8. gr. reglnanna bætist ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi:

Reglur þessar falla úr gildi þegar allir nemendur sem innritast í námið skv. 1. gr. þessara reglna hafa lokið því.

4. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði Háskóla Íslands með heimild í 18. gr. laga nr.
85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 47. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 21. janúar 2026.

Silja Bára R. Ómarsdóttir.

Magnús Jökull Sigurjónsson.

B deild — Útgáfudagur: 5. febrúar 2026

Tengd mál