Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umhverfismál
Undirritunardagur
16. mars 2026
Útgáfudagur
20. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 19/2026
16. mars 2026
LÖG
um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-reglur, móttaka úrgangs í höfnum).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
- 4. tölul. orðast svo: Farmleifar: Leifar hvers konar farms um borð, á þilfari eða í lestum eða tönkum, sem eftir verða að lokinni fermingu og affermingu, þ.m.t. umframmagn og leki í tengslum við fermingu eða affermingu, hvort sem þær eru þurrar eða blautar eða hluti af þvottavatni, að undanskildu farmryki, sem verður eftir á þilfari að lokinni hreinsun, eða ryki á ytra byrði skips.
- Á eftir 25. tölul. kemur nýr töluliður, 26. tölul., svohljóðandi: Úrgangur fangaður af tilviljun: Úrgangur sem safnast í net við fiskveiðar.
- 26. tölul., sem verður 27. tölul., orðast svo: Úrgangur frá skipum: Allur úrgangur, þ.m.t. farmleifar, sem fellur til við starfrækslu skips eða við lestun, losun og hreinsun og fellur undir gildissvið I., II., IV., V. og VI. viðauka við MARPOL-samninginn, auk úrgangs sem er fangaður af tilviljun.
2. gr.
Við 11. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Hafnarstjórn skal gera áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um útfærslu og uppbyggingu á móttökuaðstöðu í höfnum skv. 1.–3. mgr. Þá getur ráðherra kveðið á um í reglugerð að litlar hafnir séu undanskildar kröfu um gerð áætlunar um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa.
3. gr.
Í stað tilvísunarinnar „skv. II. viðauka við reglugerð nr. 792/2004 um móttöku á úrgangi frá skipum, sbr. 3.–5. mgr.“ í 2. mgr. 11. gr. a laganna kemur: samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur, sbr. 3.–4. mgr.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. c laganna:
- Orðin „fiskiskipum, skemmtibátum sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega“ í 1. mgr. falla brott.
- Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr.:
- Í stað orðsins „má“ í 1. og 2. málsl. kemur: skal.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Einnig skal veita undanþágu frá greiðslu gjalda skv. 1. mgr. fyrir fiskiskip og skemmtibáta sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
- Í stað tilvísunarinnar „reglugerð nr. 792/2004 um móttöku á úrgangi frá skipum“ í 3. mgr. kemur: reglugerð sem ráðherra setur.
- 5. mgr. fellur brott.
6. gr.
29. gr. laganna orðast svo:
Lög þessi fela í sér innleiðingu á 3., 4. og 5. tölul. 2. gr., 5., 8. og 9. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum, um breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB, sem vísað er til í tölul. 56i í V. kafla XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2022 frá 10. júní 2022 auk innleiðingar tilskipunar 2005/35/EB um mengun sem á upptök sín um borð í skipum og innleiðingu viðurlaga við brotum sem vísað er til í tölul. 56v í V. kafla XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2009 frá 29. maí 2009.
7. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2027.
8. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á hafnalögum, nr. 61/2003:
- Orðin „fiskiskipum, skemmtibátum sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega“ í 2. málsl. f-liðar 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. laganna falla brott.
- 1. mgr. 30. gr. laganna orðast svo:
Lög þessi fela í sér innleiðingu á 8. og 9. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum, um breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB, sem vísað er til í tölul. 56i í V. kafla XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2022 frá 10. júní 2022.
Gjört á Bessastöðum, 16. mars 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Jóhann Páll Jóhannsson.
A deild — Útgáfudagur: 20. mars 2026