Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. júní 2025
Útgáfudagur
27. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 718/2025
12. júní 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 890/2016 um doktorsnám og doktorspróf við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „doktorspróf“ í 1. málsl. kemur orðið: doktorsgráðu.
- Í stað orðsins „doktorspróf“ 2. málsl. kemur orðið: doktorsgráðu.
2. gr.
Í stað orðanna „15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla“ í 4. málsl. 3. gr. reglnanna koma orðin: 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur orðið: meistaragráðu.
- Í stað orðanna „öðru prófi“ 1. málsl. 1. mgr. koma orðin: annarri gráðu.
- Í stað „BS-prófs“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: BS-gráðu.
4. gr.
Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. reglnanna kemur orðið: meistaragráðu.
5. gr.
Í stað orðsins „doktorspróf“ í 1. málsl. 3. mgr. 15. gr. reglnanna kemur orðið: doktorsgráðu.
6. gr.
Heiti 18. gr. reglnanna skal vera: Doktorsgráða án undangengins skipulagðs náms.
7. gr.
Í stað orðsins „doktorspróf“ í 4. málsl. 19. gr. reglnanna kemur orðið: doktorsgráðu.
8. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við reglur nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. júní 2025.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025