Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Hrunamannahreppur

Undirritunardagur

18. júní 2026

Útgáfudagur

2. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 752/2026

18. júní 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Hrunamannahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulag, Hrafnabjörg, L194595, frístundasvæði.

Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem tekur til frístundasvæðis í landi Hrafnabjarga, L194595. Í tillögunni felst að skilgreindar eru 34 nýjar lóðir og byggingarreitur innan þeirra þar sem heimilt er að byggja eitt frístundahús, aukahús og kalda geymslu. Deiliskipulag þetta er lagt fram samhliða breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

Samþykkt í sveitarstjórn 19. mars 2026.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 18. júní 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 2. júlí 2026

Tengd mál