Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Ökuréttindi
Undirritunardagur
11. maí 2026
Útgáfudagur
28. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 568/2026
11. maí 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011.
1. gr.
Í stað „65“ í b-lið 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 75.
2. gr.
Á eftir 1. málsl. 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Endurmenntun skal þá lokið að nýju fyrir næstu endurnýjun.
3. gr.
2. mgr. a-liðar 18. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Umsækjandi skal hafa staðist verklegt próf áður en 12 mánuðir eru liðnir frá því hann stóðst bóklegt próf.
4. gr.
Í stað orðanna „einn mánuð eftir að skilyrðum um fasta búsetu er fullnægt“ í 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar kemur: 12 mánuði.
5. gr.
Á eftir 3. mgr. 40. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi, og breytist röð annarra málsgreina samkvæmt því: Starfsleyfi skal gilda í fimm ár.
6. gr.
Orðin „Í sjálfskiptri kennslubifreið skal í stað fótstigs fyrir kúplingu vera gírstöng eða annar slíkur búnaður sem er komið þannig fyrir að ökukennari geti rofið aflrás.“ í 3. mgr. 2. tölul. IV. viðauka við reglugerðina falla brott.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á VIII. viðauka reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna „persónu- eða atvinnutengsla eða“ í 2. mgr. kemur: persónu- og atvinnutengsla, eða.
- 3. mgr. fellur brott.
8. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 58. gr., 62. gr. og 64. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 11. maí 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 28. maí 2026