Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
9. október 2026
Útgáfudagur
23. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1120/2026
9. október 2026
REGLUR
um breytingu á reglum fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 47. gr. reglnanna:
Á eftir 10. mgr. kemur ný málsgrein, 11 mgr., svohljóðandi:
- Stúdent í eins árs diplómanámi (60 ECTS) er óheimilt að skipta um námsleið á miðju háskólaári. Stúdent í diplómanámi sem hyggur á annað diplómanám eða bakkalárnám við háskólann skal ávallt sækja um nýtt nám samkvæmt almennum umsóknarfrestum skv. 48. gr., óháð því hvort inntökuskilyrði námsleiðanna séu þau sömu.
- Núverandi 11. mgr. verður 12. mgr.
2. gr.
Á eftir 71. gr. reglnanna bætist við ný grein, 71. gr. a., sem ásamt fyrirsögn orðast svo:
Skólagjöld nemenda utan EES.
Þrátt fyrir ákvæði 71. gr. er Háskóla Íslands heimilt að innheimta skólagjöld af nemendum með erlent ríkisfang sem falla undir g-lið 2. mgr. 24. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008. Gjöldin skulu mæta útgjöldum vegna kennslu, rannsókna og annarra verkefna, enda er þeim útgjöldum ekki mætt með framlögum úr ríkissjóði. Háskólaráð setur nánari reglur um gjaldtökuna, greiðslufyrirkomulag og skilyrði fyrir hugsanlegum undanþágum, sem endurskoða skal árlega.
3. gr.
Reglur þessar eru settar á grundvelli laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 9. október 2026.
Silja Bára R. Ómarsdóttir.
Magnús Jökull Sigurjónsson.
B deild — Útgáfudagur: 23. október 2026