Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Undirritunardagur
14. ágúst 2026
Útgáfudagur
17. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 894/2026
14. ágúst 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna sveitarfélagamarka.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 14. ágúst 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029, sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. apríl 2026.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Rangárþing ytra vinna að lagfæringum á sveitarfélagamörkum með breytingu á aðalskipulagi beggja sveitarfélaga frá Gaukshöfða niður undir Búðafoss. Við afmörkunina er byggt á staðfestum landamerkjum milli jarða beggja vegna Þjórsár en að öðru leyti er miðað við sveitafélagamörk samkvæmt IS50v. Jafnframt er landnotkun aðlöguð breyttum sveitafélagamörkum án breytinga á skilmálum.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 14. ágúst 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 17. ágúst 2026