Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Bláskógabyggð

Undirritunardagur

2. júní 2026

Útgáfudagur

16. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 682/2026

2. júní 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna verslunar og þjónustu og frístundabyggðar í landi Fells.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 2. júní 2026 breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. október 2025.

Í breytingunni felst skilgreining 13,9 ha svæðis fyrir verslun og þjónustu VÞ45 og 2,4 ha frístundabyggðar F110. Landbúnaðarsvæði minnkar sem þessu nemur. Á VÞ45 er gert ráð fyrir hóteli og þjónustuhúsi, 100 litlum gistihúsum til útleigu og allt að 12 íbúðar-/starfsmannahúsum. Gestafjöldi verði að hámarki 400. Í nýrri frístundabyggð F110 er gert ráð fyrir tveimur frístundalóðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 2. júní 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 16. júní 2026

Tengd mál