Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Múlaþing

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Múlaþing

Undirritunardagur

16. desember 2025

Útgáfudagur

2. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1574/2025

16. desember 2025

GJALDSKRÁ

HEF veitna ehf. – fráveita Múlaþings.

1. gr.

Gjaldskrá þessi er sett í samræmi við 15. gr. V. kafla laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, og samþykkt um fráveitur í Múlaþingi, nr. 1401/2023.

2. gr.

Eiganda eða rétthafa fasteignar sem tengst getur fráveitu Múlaþings ber að greiða gjald fyrir tengingu við veituna, sbr. 13. gr. V. kafla laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna. Gjaldið stendur undir kostnaði við tengingar fráveitu og tekur mið af gerð, stærð og lengd tenginga. Með tengigjaldi er innheimt hlutdeild í stofnkostnaði við aðliggjandi fráveitukerfi.

Af öllum nýbyggingum, hvort sem eru á eignar- eða leigulóðum á starfssvæði veitunnar skal greiða tengigjald sem hér segir:

100-149 mm tenging (allt að 20 m löng, frá stofnlögn að lóðamörkum), 297.400 kr.

150-200 mm tenging (allt að 20 m löng, frá stofnlögn að lóðamörkum), 359.100 kr.

Þar sem sérstakar aðstæður eru til staðar eða tenging er lengri en 20 metrar skal lóðarhafi greiða raunkostnað við að tengja viðkomandi fasteign við veituna.

3. gr.

Múlaþing innheimtir fráveitugjald af öllum fasteignum á starfssvæði veitunnar, sem tengdar eru eða munu tengjast henni, sbr. 14. gr. V. kafla laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna. Fráveitugjaldið, ásamt öðrum tekjum fráveitunnar, stendur undir rekstri hennar.

Árlegt fráveitugjald í Múlaþingi er 0,30% af fasteignamati fasteigna og lóða.

4. gr.

Ekki eru í gildi reglur um niðurfellingu eða afslátt á tengi- eða fráveitugjaldi veitunnar.

5. gr.

HEF annast hreinsun rotþróa í eigu fasteignaeigenda á starfssvæði veitunnar þriðja hvert ár. Gjaldið er miðað við raunkostnað við hreinsun, urðun seyru og umsjón með verkinu.

Árlegt gjald í Múlaþingi fyrir hreinsun hverrar rotþróar:

  ≤ 6,0 rúmmetrar  23.500 kr. 
  > 6,0 rúmmetrar     5.800 kr. fyrir hvern m³ þróar

6. gr.

Komi fram beiðni um eða ef nauðsynlegt er að hreinsa rotþró sérstaklega, skal greiða sérstakt gjald sem er 70% álag á árlegt hreinsunargjald. HEF er einnig heimilt að innheimta sérstakt aukagjald þar sem þannig háttar til að um óvenjumikinn kostnað er að ræða við hreinsun rotþróa, stærð þróar er meiri en stærðatafla í 5. gr. nær yfir, eða þegar sérstakar aðstæður krefjast aukinnar þjónustu. Miðað er við að gjaldið endurspegli þann raunkostnað sem af verkinu hlýst.

7. gr.

HEF innheimtir tengigjöld. Gjalddagi þeirra er við útgáfu reiknings og er eindagi 15 dögum síðar.

Múlaþing innheimtir fráveitugjald og gjald fyrir hreinsun rotþróa með fasteignaskatti og eru gjalddagar þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatts.

Fráveitugjaldi og tengigjaldi ásamt innheimtukostnaði og vöxtum fylgir lögveðsréttur í fasteigninni í tvö ár frá gjalddaga. Lögveð þetta gengur fyrir eldri sem yngri samnings- og aðfararveðum og yngri lögveðum. Ef hús brennur eftir að fráveitugjald eða heimæðargjald gjaldfellur er sami forgangsréttur í brunabótafjárhæð fasteignarinnar. Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.

Ofangreind gjöld hafa verið uppreiknuð frá síðustu gjaldskrá samkvæmt breytingu á vísitölu byggingarkostnaðar til október 2025 (gildistími) sem er 125,9 stig (grunnur 2021).

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var 14. október 2025 af stjórn HEF veitna skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1624/2024.

Múlaþingi, 16. desember 2025.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 2. janúar 2026

Tengd mál