Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
28. júní 2026
Útgáfudagur
30. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 63/2026
28. júní 2026
LÖG
um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (gjaldtökuheimildir).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Við 2. mgr. 24. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: gjöldum af nemendum með erlent ríkisfang sem falla undir g-lið. Álögð gjöld samkvæmt þessum lið skulu mæta útgjöldum skv. 1. mgr. fyrir þá nemendur sem ekki fylgir fjárframlag samkvæmt reglum um fjárframlög sem settar eru á grundvelli laga um háskóla.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2026.
Gjört á Bessastöðum, 28. júní 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Logi Einarsson.
A deild — Útgáfudagur: 30. júní 2026