Ekki má nota ökutæki sem hefur verið skráð úr umferð fyrr en það hefur verið skráð aftur í umferð og númeraplötur eða gildur skoðunarmiði eru til staðar.
Skráð úr umferð með miða
Ef ökutæki er skráð úr umferð með miða þarf að:
Skrá það aftur í umferð með rafrænni tilkynningu hér að ofan.
Fá nýjan skoðunarmiða áður en það er tekið í notkun.
Skráð úr umferð með innlögn
Aðeins skráður eigandi eða umráðamaður getur sótt númeraplötur.
Framvísa þarf gildum skilríkjum.
Ef annar sækir þarf skriflegt umboð.
Athugið: Ökutækið þarf að vera tryggt áður en númeraplötur eru afhentar og ökutækið skráð í umferð.
Hafi ökutæki ekki gilda aðalskoðun má veita viku frest til skoðunar, nema númeraplötur hafi verið afklipptar af lögreglu. Eigandi þarf þá að undirrita yfirlýsingu og akstursheimild þarf að vera skráð og sýnileg í ökutækinu. Athugið að akstursheimild kemur ekki í veg fyrir álagningu vanrækslugjalds við mánaðarmót.
Númeraplötur fjarlægðar af lögreglu
Afklippt vegna vanbúnaðar eða skoðunar
Færa þarf ökutækið til skoðunar.
Ekki má skrá ökutæki í umferð nema niðurstaða skoðunar sé:
Án athugasemda
Lagfæring
Númeraplötur eru afhentar á skoðunarstöð að lokinni skoðun.
Afklippt vegna trygginga
Tryggja þarf ökutækið áður en númeraplötur eru sóttar.
Kostnaður
Það kostar ekkert að skrá ökutæki aftur í umferð. Hins vegar þarf að greiða öll gjaldfallin opinber gjöld sem kunna að hvíla á ökutækinu áður en númer eru afhent.
Umferðarskráningar - algengar spurningar

Þjónustuaðili
Samgöngustofa