Skoðunarstofur
Helstu hlutverk A-skoðunarstofu
Úttekt á skipum og búnaði - skoða hvort skip og búnaður sé í samræmi við lög, reglur og skoðunarhandbækur sem gilda og gefnar út af Samgöngustofu.
Eftirlit með nýsmíði og breytingum - fylgjast með nýsmíði og breytingum á skipum allt að 15 m og votta að þar sé unnið í samræmi við teikningar og smíðalýsingar sem Samgöngustofa hefur samþykkt.
Faggiltum skoðunarstofum
er heimilt að skoða öll skip nema:
Upphafsskoðun vegna nýsmíða, innflutnings eða breytinga.
Eftirlit með nýsmíði og meiri háttar breytingum skipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd.
Farþegaskip sem falla undir tilskipun 2009/45/EB sem er innleidd með reglugerð nr. 666/2001, með síðari breytingum.
Háhraðaför, sbr. kóða um háhraðaför (HSC-kóðinn).
Skip sem eru 400 brúttótonn að stærð eða stærri.
Olíuflutningaskip sem eru 150 brúttótonn að stærð eða stærri.
Skip í reglubundnum millilandasiglingum og eru 24 m að lengd eða lengri smíðuð eftir 1966.
Eftirtaldar A-skoðunarstofur skipa og búnaðar hafa starfsleyfi Samgöngustofu:
BSI á Íslandi ehf. kt. 551104-2140
Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík
Sími: 4144444 / info@bsiaislandi.is
Vefsíða
Löggilding ehf. kt. 611218-2490
Brekkubraut 1, 300 Akranes
Sími: 5666030 / loggilda@loggilda.is
Vefsíða
Laga og reglugerðastoð
Reglugerð nr. 94/2004, um starfshætti faggiltra skoðunarstofa skipa og búnaðar
Þjónustuaðili
Samgöngustofa