Fara beint í efnið

Sækja um niðurfellingu aðflutningsgjalda af aðföngum til atvinnustarfsemi

Fyrirtæki í ákveðnum atvinnugreinum geta fengið tolla og vörugjöld af hráefnum og aðföngum felld niður eða endurgreidd.

Undanþágan gildir um aðföng sem notuð eru við

  1. Framleiðslu iðnaðarvara (gildir ekki um skipasmíðar og skipaviðgerðir).

  2. Framleiðslu garðyrkjuafurða.

  3. Kvikmyndagerð og hljóðvinnslu.

  4. Flugrekstur.

Almenn skilyrði til að nýta undanþáguna eru að aðföngin:

  • verði eingöngu notuð í viðkomandi atvinnustarfsemi.

  • falli undir vörusvið viðkomandi starfsemi.

  • séu ætluð aðila sem er með tilskilin starfs- og rekstrarleyfi (eins og iðnaðar- eða flugrekstrarleyfi) og er skráður á virðisaukaskattsskrá hjá Skattinum.

Umsóknarferlið skref fyrir skref

  1. Senda þarf útfyllta og undirritaða tilkynningu til skráningar(.pdf) á netfangið skjalabeidni@skatturinn.is, þar sem starfsemin og þau aðföng sem á að kaupa eru útskýrð stuttlega. Ekki þarf að fylgja afrit af rekstrarleyfi nema Skatturinn óski sérstaklega eftir því.

  2. Uppfylli umsækjandi skilyrðin gefur Skatturinn út staðfestingu með heimildarnúmeri og undanþágulykli, sem send er til baka með tölvupósti.

  3. Staðfestingin veitir leyfi til að flytja inn aðföngin án greiðslu gjalda, eða fá gjöldin endurgreidd eftir á.

Hvernig er þetta notað við tollafgreiðslu?

Í reit 14 á innflutningsskýrslu skal tilgreina undanþágulykil ásamt undanþágutilvísun (til dæmis: UND T0029 vegna garðyrkju). Með því sækir rétthafi um undanþágu gjalda fyrir viðkomandi vöru og skuldbindur sig um leið til að fara eftir öllum leiðbeiningum, takmörkunum og skilyrðum sem fylgja heimildinni.

Ef þú ert í vafa, hafðu samband við Skattinn

Þjónustuaðili

Skatt­urinn