Þolendur kynferðisofbeldis
Leiðbeiningar og ráðleggingar fyrir þolendur kynferðisofbeldis
Hringið í 1700 utan dagvinnutíma til að fá samband við lækni/hjúkrunarfræðing á heilsugæslu
Hringið í 112 fyrir neyðartilfelli
Netspjall 112 er alltaf opið (Netspjall 112)
Hægt er að eiga nafnlaust netspjall ef ekki er óskað eftir neyðarþjónustu á staðinn
Hvert get ég leitað aðstoðar?
Á Landspítala er opið allan sólarhringinn á Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis
Slysa- og bráðamóttaka HSS er opin allan sólarhringinn og þangað er hægt að leita til að fá aðstoð og ráðleggingar.
Hjálparsími 112 og vaktsími 1700 beina brotaþola til vakthafandi læknis/hjúkrunarfræðings á HSS sem aðstoðar við viðeigandi ráðstafanir hverju sinni
Reyndu að leita aðstoðar sem fyrst
Það er best fyrir heilsu þína og mögulega rannsókn á brotinu
Fyrstu sólarhringarnir eftir brotið er mikilvægur tími varðandi lífsýnasöfnun ef ákveðið er að kæra brotið síðar
Gögn og lífssýnin er hægt að nota til að styðja mál fyrir dómi. Með lífsýnum er átt við þau efni úr fólki sem veitir líffræðilegar upplýsingar. Gögn af staðnum sem atburðurinn átti sér stað og upplýsingar frá vitum, ef vitni voru til staðar, eru einnig mikilvæg
Hæg er að leita á slysa- og bráðamóttöku HSS óháð tímalengd frá broti til að fá ráðgjöf, stuðning og fræðslu. Einnig vegna sýnatöku fyrir smitsjúkdómum, kynsjúkdómum, sýkingum eða þungun
Hægt er að fá tengingu við réttargæslumann sé þess óskað óháð tímalengd frá broti eða ákvörðun um kæru
Úrræði fyrir þolendur kynferðisbrota utan heilsugæslu
Á vef 112 er hægt að finna góð ráð frá þolendum kynferðisofbeldis