Myndgreiningar
Myndgreiningardeild framkvæmir almennar röntgen- og tölvusneiðmyndarannsóknir. Allar rannsóknirnar eru sendar rafrænt til úrlesturs sérfræðilækna hjá Röntgen Domus.
Úrlestur rannsókna fer yfirleitt fram samdægurs og hafa læknar HSS rafrænan aðgang að þeim niðurstöðum um leið og þær liggja fyrir.
Röntgendeildin hefur tvö myndgreiningartæki. Annars vegar röntgentæki og hins vegar tölvusneiðmyndatæki (CT) Hver rannsókn tekur um það bil 10-20 mínútur.
Mikilvægt er að konur á barneignaraldri láti geislafræðing vita ef þær eru barnshafandi eða telja það mögulegt. Þá er sýnd sérstök aðgæsla með tilliti til geislavarna til fóstursins og reynt verður þá að velja aðrar rannsóknaraðferð, sé þess kostur.
Ef skjólstæðingur er að fara í tölvusneiðmyndatöku þarf oft að gefa joðskuggaefni í æð. Mikilvægt er að láta vita af ofnæmi eða mögulegu óþoli og gerðar verður viðeigandi ráðstafanir. Mælt er með því að drukkið sé vel af vatni fyrstu klukkustundirnar eftir skuggefnisgjöf.
Hægt er hringja á deildina í síma 422-0506 og panta tíma í myndatöku