Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Hjúkrunarmóttaka

Þjónusta hjúkrunarfræðinga á Heilsugæslu

Hægt er að fá símasamband við hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði

Reyndir hjúkrunarfræðingar veita ráðgjöf og upplýsingar um heilbrigðismál og starfsemi HSS. Hægt er að bóka símatíma í síma 422 0500 frá 8 til 12 virka daga. Móttökuritari tekur niður nafn, kennitölu og símanúmer og haft er samband um leið og færi gefst.

Hjúkrunarfræðingar eru með móttöku alla virka daga frá 8 til 16.

Tímabókanir í hjúkrunarmóttöku á Heilsuvera.is eða í síma 422 0500 alla virka daga frá 8 til 16.

Hjúkrunarfræðingar sinnir erindum sem flokkast undir:

  • Sárameðferð, húðmeðferð, vörtumeðferð og saumatökur

  • Ýmis umbúðaskipti og þvagleggsskipti

  • Sprautugjafir, lyfjagjafir

  • Ferðamannaheilsuvernd og bólusetningar vegna ferðalaga

  • Aðrar bólusetningar, til dæmis vegna inflúensu, lungnabólgu og hlaupabólu.

  • Ákveðnar rannsóknir og mælingar, til dæmis blóðþrýstingsmælingar og ómun á þvagblöðru

  • Eyrnaskol

  • Ákveðnar sýnatökur, til dæmis hálsstrok, þvagprufur og rannsóknir vegna kynsjúkdóma

  • Ráðgjöf, upplýsingar og fræðsla

  • Virk hlustun og andlegur stuðningur

  • Leiðbeiningar um heilbrigðiskerfið

Sjúkraliðar sinna eftirfarandi þjónustu á völdum dögum:

  • Heyrnarpróf

  • Hjartalínurit

  • Öndunarpróf

  • Minnispróf

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Hafa samband

Aðalnúmer: 422 0500

hss@hss.is

Opnun­ar­tími

Allir opnunartímar

Slysa- og bráðamóttaka er
opin allan sólarhringinn


Heim­ils­fang

Skólavegi 6
230 Reykjanesbæ

Kennitala: 511297-2819