Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Geðheilsuteymi/Sálfélagsleg þjónusta

Þjónusta geðteyma sálfélagslegrar þjónustu fer fram frá kl. 8:00 til 16:00.

Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru starfrækt þrjú teymi sem sinna sálfélagslegri þjónustu:

  • Forvarnar- og meðferðarteymi barna

  • Geðheilsuteymi

  • Geðteymi fullorðinna

Teymin starfa eftir stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda í geðheilbrigðismálum. Geðteymin þjónusta skjólstæðinga HSS og nær þjónustan til allra sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Forvarnar- og meðferðarteymi barna

Er fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri sem falla fyrir utan ramma þeirrar þjónustu sem skólasálfræðingar veita á Suðurnesjum. Áhersla er lögð á meðferð við þunglyndi, kvíða og áföllum þar sem vandinn er vægur til miðlungs alvarlegur. Eins er boðið upp á 1-3 ráðgefandi viðtöl við foreldra barna með hegðunarvanda. Tilgangur þeirra viðtala er fyrst og fremst að kortleggja vandann, veita almenna ráðgjöf og ef þörf er á vísa í viðeigandi úrræði ef vandi barns er talinn fjölþættur eða langvarandi.

Geðteymi

Geðteymið er fyrir einstaklinga 18 ára og eldri þar sem áhersla er lögð á sálfræðimeðferð við þunglyndi, kvíða og áföllum þar sem vandinn er vægur-miðlungs alvarlegur. Í Geðteyminu eru bæði veittar einstaklingsmeðferðir og hópmeðferðir.

Geðteymið þjónustar einnig foreldra barna frá 0-1 árs sem kljást við tilfinningalegan vanda. Áhersla er lögð á að efla tengslamyndun milli barns og foreldris.

Sálfræðiþjónusta geðteymis er ekki langtíma úrræði fyrir alvarlegan geðrænan vanda. Ef vandi reynist alvarlegur eða fjölþættur í matsviðtali er beiðni vísað áfram í viðeigandi úrræði.

Teymið sinnir ekki greiningum á ADHD, einhverfu, greindarprófunum eða þroskamötum.

Geðheilsuteymi fullorðinna

Geðheilsuteymið er 2. stigs þjónusta þar sem unnið er með geðvanda einstaklinga 18. ára og eldri út frá þverfaglegri aðkomu. Gert er ráð fyrir að þjónustan sé tímabundin.

Hvernig er hægt að panta tíma/viðtal?

Tilvísun þarf að berast frá fagfólki í heilbrigðis- eða velferðarþjónustu með lýsingu á vanda og grun um geðgreiningu. Tilvísanir frá heilbrigðisstarfsfólki skulu berast í gegnum sögukerfið. Mikilvægt er að tilvísun sé vel útfyllt svo hægt sé að taka afstöðu til hennar. Ófullnægjandi tilvísunum er vísað frá.

Fyrir frekari upplýsingar varðandi teymin má senda fyrirspurn á gedheilsuteymi@hss.is

  • Tilvísanir eru teknar fyrir á vikulegum teymisfundum.

  • Gera má ráð fyrir að bið eftir meðferð geti orðið löng, allt upp í 10 til 11 mánuðir.

  • Reynt er að bregðast hratt við tilvísunum og kalla umsækjanda inn í matsviðtal innan tveggja vikna frá því að tilvísun berst.

Í matsviðtali er farið yfir viðeigandi úrræði á biðtíma eftir einstaklingsmeðferð, bæði innan stofnunar sem utan.

  • Þjónusta teyma Sálfélagslegrar þjónustu er ekki langtíma úrræði fyrir alvarlegan geðrænan vanda.

  • Teymunum er ekki ætlað að sinna bráðatilfellum.

  • Ekki er unnið með félagslegan vanda, áfengisvanda, þroskaskerðingu og annan vanda sem krefst sérhæfðari þjónustu.

  • Teymin sinna ekki greiningum á ADHD, einhverfu, greindarprófunum eða þroskamötum.

Sé þörf á bráðaþjónustu

Hafðu samband við bráðamóttöku geðsviðs LSH.

Símatímar bráðaþjónustu göngudeila LSH: Sími 543 4050, opið virka daga 12:00 til 19:00 og helgar og helgidaga 13:00 til 17:00.

Vakthafandi læknir á geðdeild Landspítala: Sími 543 1000

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Hafa samband

Aðalnúmer: 422 0500

hss@hss.is

Opnun­ar­tími

Allir opnunartímar

Slysa- og bráðamóttaka er
opin allan sólarhringinn


Heim­il­is­fang

Skólavegi 6
230 Reykjanesbæ

Kennitala: 511297-2819