Starfsstöðvar
Heilsugæslan í Reykjanesbæ er staðsett að Skólavegi 6, Reykjanesbæ.
Almenn móttaka lækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra er alla virka daga frá 8:00 til 16:00.
Tímabókanir eru alla virka daga frá 8:00 til 16:00 í síma 422 0500
Síðdegisvakt lækna er alla virka daga frá 15:30 til 20:00
Bóka þarf tíma á síðdegsivakt samdægurs.
Opnað er fyrir bókanir kl. 13:00 í síma 422 0500
Helgarvakt lækna er frá 10:00 til 15:00 allar helgar og helgidaga.
Bóka þarf tíma á helgarvakt samdægurs.
Opnað er fyrir bókanir kl. 10:00 í síma 422 0500
Ef um lífsógnandi tilfelli er að ræða á að hringja í 112
Í vafatilfellum skal hringja í upplýsingasímann 1700 en einnig er hægt að leita til slysa- og bráðamóttöku HSS
Heilsugæslan í Suðurnesjabæ er staðsett í Vörðunni, Miðnestorgi 3, Suðurnesjabæ.
Almenn móttaka lækna og hjúkrunarfræðinga er:
mánudaga og föstudaga frá 9:00 til 12.00
miðvikudaga frá 9:00 til 15:00
Tímabókanir eru alla virka daga frá 8:00 til 16:00 í síma 422 0500.
Heilsugæslan í Vogum er staðsett að Iðndal 2, Vogum
Almenn móttaka lækna og hjúkrunarfræðinga er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 12:00.
Tímabókanir eru alla virka daga frá 8:00 til 16:00 í síma 422 0500
Í september 2026 er áætlað að HSS hefji rekstur á Hlévangi við Faxabraut 13, Reykjanesbæ.
Þar verða rekin 24 skammtíma hjúkrunarrými til að létta álagi af bráðamóttöku Landspítala en rýmin eru skammtímarými, ætluð einstaklingum með færni og heilsumat sem lokið hafa meðferð á spítalanum.
Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og eru aðgerðir vegna uppbyggingarinnar þegar hafnar. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028.
Sálfélagsleg þjónusta og geðheilsuteymi eru staðsett að Hafnargötu 90, Reykjanesbæ.
Þjónusta geðteyma sálfélagslegrar þjónustu fer fram frá kl. 8:00 til 16:00.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru starfrækt þrjú teymi sem sinna sálfélagslegri þjónustu:
Forvarnar- og meðferðarteymi barna
Geðheilsuteymi
Geðteymi fullorðinna