Krókaaflamarksbátar mega ekki stunda veiðar með rauðmaganetum nema með leyfi Fiskistofu.
Á hverju ári er gefin út reglugerð um hrognkelsaveiðar og getur verið munur á reglugerðum milli ára.
Reglur
Veiðar með rauðmaganetum eru óheimilar frá 16. júní til 31. desember.
Rauðmaganet skulu vera með möskva á bilinu 7 þumlunga (178 mm) til 8 þumlunga (203 mm) og net 20 möskva eða grynnri.
Merkja á hvern blýtein og flottein með skipaskrárnúmeri.
Netabaujur skulu merktar með flaggi þar sem fram kemur umdæmisnúmer eða skipaskrárnúmer þess skips sem notar þær.
Númera á trossurnar frá einum til þess fjölda trossa sem hver bátur á í sjó.
Númer netatrossu skal vera á baujuflaggi.
Tapist veiðarfæri skal tilkynna það strax til Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu.
Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferli og kostar leyfið 22.000 krónur

Þjónustuaðili
Fiskistofa