Nýsköpunar- og þróunarsjóður fjölmiðla
Tilgangur og markmið sjóðsins er að veita styrki til skilgreindra verkefna sem stuðla að nýsköpun, tækniþróun og þróun nýrra viðskiptaaðgerða á einkareknum fjölmiðlum.
Hægt er að sækja um fyrir tvær tegundir verkefna:
Stofnun og þróun nýs fréttamiðils
Nýsköpun innan starfandi fréttamiðils
Umsækjendum er heimilt að sækja um fyrir fleiri en eitt verkefni en senda þarf eina umsókn fyrir hvert verkefni. Ekki er hægt að sækja um bæði styrk til að stofna nýja fréttamiðil og styrk til nýsköpunar innan starfandi fréttamiðils.
Styrkt verkefni ættu að jafnaði ekki að vera til lengri tíma en eins árs í senn.
Til úthlutunar árið 2026 verða 40 m.kr. að frádregnum umsýslukostnaði.
Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel reglur um úthlutun styrkja úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla sem birtar voru í stjórnartíðindum 11. september 2026. Reglurnar falla úr gildi 31. desember 2026.
Sjá frétt um sjóðinn frá 30. september 2026 á vef menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.
Sjóðurinn er hluti af aðgerðaráætlun fjölmiðla - nánar tiltekið aðgerð 8.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.
Opið er fyrir umsóknir frá 7. október 2026 – 16. nóvember 2026 kl: 15:00.
Eindregið er mælt með að skila ekki umsókn á síðasta degi.
Tekið er á móti fyrirspurnum á netfangið fjolmidlasjodur@rannis.is
Rannís annast umsýslu sjóðsins fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands