NordForsk
NordForsk styrkir norrænt rannsóknasamstarf og rannsóknainnviði með það að markmiði að efla vandaðar rannsóknir sem standast alþjóðlegan samanburð og skapa norrænan virðisauka.
Fyrir hverja
NordForsk fjármagnar og styður rannsóknaverkefni og rannsóknainnviði þar sem samstarf er á milli Norðurlandanna og, eftir atvikum, við Eystrasaltsríkin og önnur lönd.
Norrænn virðisauki (Nordic Added Value) er grundvallarþáttur í starfsemi NordForsk og gengur þvert á rannsóknaráætlanir og köll. Með því er átt við að samstarf milli Norðurlandanna skili meiri ávinningi, betri gæðum eða víðtækari áhrifum en unnt væri að ná með verkefni sem unnið er innan eins lands.
Styrkir og umsóknir
NordForsk auglýsir reglulega eftir umsóknum í rannsóknaráætlanir og samstarfsverkefni. Ekki eru fastir árlegir umsóknarfrestir heldur eru ný köll birt eftir því sem rannsóknaráætlanir og verkefni fara af stað.
Skilyrði um þátttöku, samstarf milli landa, styrkupphæðir og önnur ákvæði eru mismunandi eftir köllum og koma fram í hverri auglýsingu.
Mikilvægt fyrir íslenska umsækjendur
Ísland tekur ekki sjálfkrafa þátt í öllum köllum NordForsk. Þátttaka Íslands í einstökum áætlunum og köllum er háð því að fjármagn sé tryggt af hálfu íslenskra stjórnvalda. Íslenskir umsækjendur þurfa því ávallt að ganga úr skugga um að Ísland sé meðal þátttökulanda í viðkomandi kalli áður en umsókn er undirbúin.
Nánari upplýsingar
Upplýsingar um opin köll, þátttökulönd og umsóknarfresti eru birtar á vef NordForsk og hjá Rannís.
Fyrirspurnir sendist á netfangið: nordforsk@rannis.is

Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands