Fara beint í efnið

Leyfi utan netlaga - Þari

Leyfið er bundið við skip.

Skilyrði

  • Skip hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni.

  • Umsækjandi þarf að hafi fengið umsögn vegna nýtingaráætlunar frá Hafrannsóknarstofnun og Náttúrufræðistofnun.

Gildi leyfis

Gildistími leyfisins er allt að 10 ár.

Löndun sjávargróðurs og skráning afurða

  • Allan sjávargróður á að vigta á hafnarvog.

  • Skila þarf afladagbók fyrir hverja veiðiferð áður en skipið leggst að bryggju.

Veiðigjöld

Öflun er undanþegin veiðigjaldi nema fyrir hrossaþara og stórþara.

Umsókn

Umsókn á að senda á netfangið fiskistofa@fiskistofa.is.

Í umsókn þarf að koma fram:

  • Umsóknaraðili, nafn og kennitala

  • Upplýsingar um tengilið:

    • nafn

    • kennitala

    • símanúmer

    • netfang

Fylgigögn umsóknar

  • Nýtingaráætlun sem fengið hefur umsögn frá Hafrannsóknastofnun og Náttúrufræðistofnun.

    • Umsagnirnar eiga að fylgja áætluninni.

Í nýtingaráætluninni á eftirfarandi að koma fram:

  • hvaða skip á að hagnýta við öflun,

  • hversu miklu magni verði aflað,

  • hvar öflun fari fram og eftir atvikum hvaða svæði verði hvíld til að örva endurvöxt.

Áætlunin á að byggjast á mati á lífmassa og líklegu aðgengi. Leitast á við að gera grein fyrir áhrifum nýtingar á umhverfið með hliðsjón af þeim tækjum og aðferðum sem verða hagnýtt.

Leyfið kostar kr. 22.000 og innheimtist með greiðsluseðli í heimabanka umsækjanda.

Þjónustuaðili

Fiski­stofa